Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
67
NORÐURLAND VESTRA
Norðurland vestra nær frá Hrútafirði að vestan og inn á Tröllaskaga í austri. Sveitarfélög í
landshlutanum eru sjö, en hér eru fjögur þeirra til umfjöllunar. Landsvæði þessara sjö sveitarfélaga
nær yfir 13.105 km
2
. Þau fjögur sem hér er fjallað um eru Húnaþing vestra og þar með talinn
Bæjarhreppur sem sameinaðist Húnaþingi vestra í janúar 2012, Húnavatnshreppur, Blönduóssbær og
Sveitarfélagið Skagaströnd. Þessi fjögur (fyrrum fimm) sveitarfélög ná yfir alls 7.072 km
2
. Á
Norðurlandi vestra búa ríflega sjö þúsund manns, þar af 2.885 í þessum fjórum sveitarfélögum. Í
Húnaþingi vestra eru tveir þéttbýliskjarnar, Hvammstangi og minni kjarni á Laugarbakka. Tveir
þéttbýliskjarnar eru í hinum sveitarfélögunum, Blönduós og Skagaströnd.
Bæjarhreppur sameinaðist Húnaþingi vestra í janúar 2012, en þegar skýrsluhöfundar voru í
gagnaöflun og heimsóttu svæðið var fundað með þáverandi sveitarstjórn og liggur sá fundur m.a. til
grundvallar þessari umfjöllun. Því er víða fjallað um Bæjarhrepp sem slíkan, þótt hann sé ekki lengur
til sem sjálfstætt sveitarfélag.
Þóroddur Bjarnason telur í greiningu sinni eðlilegt að fjalla um Húnavatnssýslur og Skagafjörð sem tvö
aðskilin svæði. Hann flokkar Húnavatnssýslurnar sem varnarsvæði, en Skagafjörður fellur hins vegar
undir vaxtarsvæði ásamt m.a. Eyjafjarðarsvæðinu (Þóroddur Bjarnason, bls. 9-12). Það hefði því mátt
fjalla um öll sveitarfélög í Húnavatnssýslu, bæði austur og vestur, sem eitt svæði í stað þess að skipta í
vestur- og austursvæði eins og hér er gert. Það er í samræmi við gömlu sýslumörkin, nema hvað
tilkoma Bæjarhrepps í Strandasýslu breytir myndinni. Það er af ýmsum ástæðum eðlilegt að skipta
þessu svona, t.d. eru þetta tvö vinnusóknarsvæði, annars vegar svæðið út frá Hvammstanga, sem er
frá Borðeyri og að Vatnsdal, en hins vegar nágrenni Blönduóss sem nær líka yfir Skagaströnd og
dalina í Austur-Húnavatnssýslu. Austursvæðið skarast svo við vinnusóknarsvæði Sauðárkróks
(Byggðastofnun, Vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaða 2011). Hvammstangi er mitt á milli Akureyrar og
Reykjavíkur og íbúar Húnaþings vestra sækja mikið þjónustu suður yfir Holtavörðuheiði. Austur-
Húnavatnssýsla liggur mun nær Skagafirði og Akureyri og því eðlilegt að þaðan sé leitað þjónustu
austur á við.
Mikið samstarf var milli Húnaþings vestra og Bæjarhrepps fyrir sameiningu. Bæjarhreppur hafði (ári
fyrir sameiningu) gengið úr Fjórðungssambandi Vestfjarða og fengið aðild að SSNV, Samtökum
sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Eflaust spila margir þættir inn í þessa þróun mála. Með vegi um
Arnkötludal töldu ýmsir að útséð væri um vegabætur gegnum Bæjarhrepp og norður Strandir og því
vandséð að íbúar hreppsins gætu átt samstarf við sveitarfélög á Ströndum með góðu móti.
Meginhluti byggðarinnar liggur nær Húnaþingi vestra og samgöngur þangað eru ágætlega greiðar.
Byggðin við Hrútafjörð er einnig eitt vinnusóknarsvæði.
Samgöngur eru í allgóðu horfi á svæðinu, enda liggur þjóðvegur eitt í gegn og ýmsir tengivegir eru
malbikaðir. Vegir í Bæjarhreppi eru að mestu malarvegir og ekki alltof góðir. Einnig eru slæmir
malarvegir víða í Húnavatnssýslum. Eftir að vegurinn yfir Þverárfjall var opnaður hefur samstarf
austur á við aukist og dæmi um að fólk úr Austur-Húnavatnssýslu sæki vinnu á Sauðárkrók, og öfugt.
Landshlutinn er sá eini utan áhrifasvæðis höfuðborgarinnar þar sem ekki eru flugsamgöngur. Eina
vegaverkefnið á samgönguáætlun fyrir þetta svæði er lagning nýs vegar milli Skagastrandar og
Blönduóss (Samgönguáætlun bls. 179). Vegalengdir eru sýndar í eftirfarandi töflu:
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
68
Staðir sem farið er milli
Fjöldi km á
milli staða
Akureyri
Hvammstangi
203
Blönduós
144
Reykjavík
Hvammstangi
197
Borðeyri
171
Skagaströnd
267
Blönduós
244
Hvammstangi
Borðeyri
42
Laugarbakki
9
Sauðárkrókur
Skagaströnd
52
Blönduós
47
Blönduós
Skagaströnd
23
Húnavellir
19
www.vegagerdin.is
Byggðastofnun gerði tvær kannanir í tengslum við þessa skýrslu. Í fyrsta lagi voru sendir út
spurningalistar til sveitar- og bæjarstjóra þar sem spurt var um framboð á þjónustu í sveitar- eða
bæjarfélaginu. Úrvinnsla svaranna birtist í umfjöllun um þjónustuþætti og er þá jafnan vísað til
þjónustukönnunarinnar. Svör bárust ekki úr Húnaþingi vestra. Þá var gerð viðhorfskönnun meðal íbúa
20-39 ára í þeim sveitarfélögum sem þessi skýrsla fjallar um. Svarhlutfall var fremur lágt, eða kringum
20% sem þýðir að ekki er hægt að alhæfa út frá svörunum, en þau gefa engu að síður vísbendingu um
viðhorf þessa hóps. Svarendur á Norðurlandi vestra voru 30 af 286 alls. Greinargerð um
viðhorfskönnuna er að finna í viðauka með þessari skýrslu.
Nokkrar niðurstöður úr viðhorfskönnun meðal íbúa 20-39 ára í fjórum (fimm) sveitarfélögum á
Norðurlandi vestra:
-
Svipað hlutfall sagðist ætla að flytja á næstu fimm árum á Norðurlandi vestra, Norðurlandi
eystra og á Austurlandi, eða um 40% svarenda. Hafa ber í huga að svarhlutfall var lágt og
svarendur af þessu svæði einungis tæplega 30. Engu að síður gefa svörin nokkra vísbendingu.
Ætlarðu að flytja frá byggðarlaginu á næstu fimm árum?
-
Um 27% svarenda á svæðinu sögðu atvinnulíf mjög eða frekar fjölbreytt, sem er hærra
hlutfall en í öðrum landshlutum. Engu að síður telur meirihluti að atvinnulíf sé frekar eða
0
10
20
30
40
50
60
70
80
90
%
Já
Nei