1
Sóknaráætlun Norðurlands eystra
Efnisyfirlit
Inngangur ................................................................................................................................................ 2
Framtíðarsýn og leiðarljós ....................................................................................................................... 3
Framtíðarsýn árið 2025 ....................................................................................................................... 3
Leiðarljós í menningu: ......................................................................................................................... 3
Leiðarljós í ferðaþjónustu .................................................................................................................... 3
Leiðarljós fyrir nýsköpun og atvinnuþróun ......................................................................................... 3
Leiðarljós varðandi mannauð .............................................................................................................. 3
Leiðarljós fyrir lýðfræðilega þróun svæðisins...................................................................................... 3
Staða landshlutans árið 2015 .................................................................................................................. 4
Staða atvinnuþróunar og nýsköpunar ................................................................................................. 7
Staða ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra .......................................................................................... 8
Staða menningar ................................................................................................................................. 8
Staða mannauðs og lýðfræðileg þróun ............................................................................................. 10
Stefna og megináherslur ....................................................................................................................... 11
Stærstu hagsmunamál landshlutans í heild ...................................................................................... 12
Menntun og mannauður ............................................................................................................... 12
Atvinnuþróun og nýsköpun ........................................................................................................... 12
Ferðaþjónustan ............................................................................................................................. 12
Menning ........................................................................................................................................ 12
Markmið og aðgerðir ............................................................................................................................. 13
Menningarmál ................................................................................................................................... 13
Atvinna og nýsköpun ......................................................................................................................... 13
Ferðaþjónusta.................................................................................................................................... 15
Menntun og mannauður ................................................................................................................... 15
Lokaorð .................................................................................................................................................. 16
2
Inngangur
Í febrúar 2015 var undirritaður samningur milli atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, mennta- og
menningarmálaráðuneytis annars vegar og Eyþings hins vegar um sóknaráætlun Norðurlands eystra
2015 – 2019. Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar
og auka samkeppnishæfni landsins alls. Sóknaráætlun landshlutans miðar að því að ráðstöfun þeirra
fjármuna sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði atvinnu-, byggða- og menningarmála
byggi á svæðisbundnum áherslum og markmiðum. Í þessu felst að forgangsröðun verkefna skal taka
mið af sóknaráætlun landshlutans sem gerð er til fimm ára. Hægt er að uppfæra áætlunina innan
tímabilsins. Uppbyggingarsjóður landshlutans hefur verið settur á fót í samræmi við samninginn.
Sóknaráætlunin er þróunaráætlun eða stefnuskjal sem felur í sér stöðumat landshlutans, framtíðarsýn
og markmið ásamt þeim leiðum sem menn vilja fara að þeim. Í samningnum er kveðið á um að áætlunin
skuli að lágmarki marka stefnu landshlutans í eftirfarandi málaflokkum:
Menningarmálum.
Nýsköpun og atvinnuþróun.
Uppbyggingu mannauðs.
Lýðfræðilegri þróun svæðisins.
Jafnframt er sóknaráætlun ætlað að taka til samstarfs við aðra landshluta þar sem um er að ræða
skörun á atvinnu- og þjónustusóknarsvæðum. Vegna mikillar gerjunar og ört vaxandi umsvifa í
ferðaþjónustu var ákveðið að taka hana sérstakleg til umfjöllunar þó áformað hefði verið að greinin
félli undir málaflokkinn nýsköpun og atvinnuþróun.
Í samningnum kemur fram að landshlutasamtökin skipi samráðsvettvang þar sem tryggð er sem
breiðust aðkoma ólíkra aðila og gætt að búsetu-, aldurs- og kynjasjónarmiðum. Landshlutasamtökin
skilgreina hlutverk og verkefni samráðsvettvangs og skal hann hafa beina aðkomu að gerð
sóknaráætlunar landshlutans og vera upplýstur um framgang hennar. Gert er ráð fyrir að
samráðsvettvangurinn komi saman a.m.k. árlega.
Ákveðið var að fara þá leið að halda fjóra svæðisfundi í landshlutanum. Fundirnir voru vandlega
auglýstir og íbúar sérstaklega hvattir til þátttöku. Fundir voru haldnir á Raufarhöfn, Húsavík, Akureyri
og Ólafsfirði. Fundirnir voru misfjölsóttir en tókust vel. Umræður voru líflegar og mikill efniviður frá
fundunum sem unnið var úr. Athygli vakti hve megináherslur fundanna voru skýrar og áþekkar milli
fundarstaða og þá um leið milli svæða.
Sú sóknaráætlun sem hér er kynnt byggir á samráði við íbúa landshlutans á þessum fjórum fundum.
Áformað var að bæta um betur og kalla til stórs samráðsfundar þar sem fulltrúar væru sérstaklega
valdir og unnið út frá niðurstöðum svæðafundanna fjögurra. Samráðsfundurinn hefur verið
skilgreindur og telur nálægt 80 manns. Rík áhersla er m.a. á að ná til fulltrúa nemenda framhaldsskóla
og háskóla. Að höfðu samráði við nokkra aðila var ákveðið að fresta því til haustsins að kalla
samráðsvettvanginn saman. Megin ástæðan var sú að komið var fram á sumar og óraunhæft að ætla
sér að ná viðunandi fjölda til fundar, ásamt því að gífurlegur efniviður lá fyrir sem afrakstur
svæðafundanna. Í haust er áformað að dýpka umræðuna á vettvangi samráðsins, einkum og sér í lagi
um leiðir til að ná þeim markmiðum sem hér eru sett fram.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir var fengin til að stýra svæðafundunum, en ásamt henni komu að
framkvæmd fundanna formaður og starfsmenn Eyþings og fleiri stoðstofnana sveitarfélaga og
atvinnulífs. Sömu aðilar hafa einnig komið að því að vinna úr efni sem kom frá fundunum. Umsjón með
úrvinnslu og lokafrágangur var í höndum Albertínu og Péturs Þórs Jónassonar framkvæmdastjóra
Eyþings.