Norðurland eystra
Svæðið nær frá Eyjafirði til Bakkafjarðar. Innan þessa
stóra svæðis eru 13 sveitarfélög, sem ná yfir 22.735
km
2
og er íbúafjöldi í þessum sveitarfélögum rúmlega
29 þúsund manns sem eru um 9% af íbúafjölda
landsins.
Atvinnulíf og hagvöxtur
Atvinnulíf á þessu Norðurlandi eystra er mjög
fjölbreytt enda um stórt og víðfeðmt svæði að ræða. Á Akureyri er atvinnulíf mjög fjölbreytt,
sjávarútvegur og ferðaþjónusta á Tröllaskaga, ferðaþjónusta er mikil og vaxandi í Þingeyjarsýslum og
landbúnaður ríkjandi þegar farið er austar. Á Norðurlandi eystra er framleiðsla mun meiri en á
grannsvæðunum og er tæplega fjórum sinnum meiri en á Norðurlandi vestra (Hagfræðistofnun og
Byggðastofnun, 2011). Þar munar mest um Akureyri sem er langstærsti bær utan
höfuðborgarsvæðisins með tæplega 18 þúsund íbúa í upphafi árs 2012, eða um 60% íbúa
landshlutans. Þjónusta er stærri hluti af atvinnulífinu á Akureyri en annars staðar utan
höfuðborgarsvæðisins,
ef
Suðurnes
eru
undanskilin.
Hægur hagvöxtur og stöðugur
mannfjöldi gera það að verkum
að tekjur á mann hafa aukist
mjög hægt undanfarin ár.
Hagvöxtur var hvergi minni en
á Norðurlandi eystra á árunum
2004 til 2009, þó litlu muni á
þessum
landshluta
og
Norðurlandi vestra. Síðustu tvö
árin hefur vöxtur þó verið yfir
landsmeðaltali. Sjávarútvegur
dróst
saman
um
rúman
fjórðung frá 2003 til 2009.
Mikill munur er þó á hagþróun
eftir svæðum þar sem á
Akureyri er fjölbreytt þjónusta,
háskóli og atvinnumöguleikar eru fjölbreyttari en á litlum stöðum. Þóroddur Bjarnason hefur
skilgreint stóran hluta þessa svæðis
sem hér er til umfjöllunar, þ.e.
Eyjafjörð
og
suðursvæði
Þingeyjarsýslu, til vaxtarsvæðis en
austursvæðið
hins
vegar
sem
varnarsvæði.
Vaxtarsvæðið
er
væntanlega áhrifasvæði Akureyrar og
telur
Þóroddur
líklegt
að
landfræðilegum hindrunum vaxtar á svæðinu verði rutt úr vegi með tveimur veggöngum,
Kennitölur - landshluti
Norðurland
eystra
Lá n By g g ð a s to fnuna r - s ta ð a 30.4.2012
4.522.663.207
s e m hlutfa ll a f he ild a rlá nv e iting um
26,97%
Va ns k il
267.493.218
s e m hlutfa ll a f v a ns k ilum í la nd s hluta num
5,91%
íb úa fjö ld i 1. ja núa r 2012
29.018
íb úa fjö ld i 1. ja núa r 2012 - k a rla r
14.523
íb úa fjö ld i 1. ja núa r 2012 - k o nur
14.495
Íb úa fjö ld i - hlutfa ll a f íb úa fjö ld a la nd s ins
9,08%
Íb úa fjö ld i - hlutfa ll k a rla r
50,05%
Íb úa fjö ld i - hlutfa ll k o nur
49,95%
Atv innule y s i 2011
5,30%
Atv innule y s i 2011 - k a rla r
5,20%
Atv innule y s i 2011 - k o nur
5,40%
Sta rfa fjö ld i hjá v ið s k ip ta v inum BST
1011
Ú tlá n p r. s tö ð ug ild i
4.473.455
Ka rla r
Ko nur
Ka rla r
Ko nur
Grunnskó la p ró f e ð a minna
28%
33%
22%
27%
Sta rfsná m í fra mha ld sskó la
5%
9%
3%
6%
Stúd e ntsp ró f
13%
20%
14%
19%
Ið nná m/ ve rkná m/ me ista ra p ró f
33%
8%
31%
9%
Grunnná m í há skó la
16%
25%
19%
27%
Fra mha ld sná m í há skó la
4%
6%
10%
11%
N o rð url. e ystra
La nd ið a llt
Tafla 1. Norðurland eystra - nokkrar kennitölur
Tafla 2. Norðurland eystra - menntunarstig miðað við landið allt
Héðinsfjarðar- og Vaðlaheiðargöngum (Byggðastofnun, 2012). Norðurþing skiptist á milli vaxtar- og
varnarsvæða samkvæmt greiningu Þórodds. Á norðaustur varnarsvæðinu hefur verið mikil
fólksfækkun, nema á Þórshöfn og telur hann brýnt að grípa strax til aðgerða ef byggð á ekki að
þurrkast út á stóru svæði (Þóroddur Bjarnason, 2010). Þórshöfn heldur íbúafjölda nokkuð, m.a. vegna
þess að þar er trygg atvinna. Samfélagið í fyrrum Raufarhafnarhreppi hefur glímt við mikla erfiðleika í
atvinnulífi og mikla íbúafækkun á undangengnum árum. Á Húsavík hefur verið jafnvægi í
atvinnumálum á undanförnum árum. Veiðar og vinnsla eru mikilvægir þættir, en samt er atvinnulíf
nokkuð fjölbreytt. Ferðaþjónusta er öflug á þessu svæði, ekki síst í Mývatnssveit, en hefur verið í
góðum vexti víðar, einkum á Húsavík. Samdráttur í atvinnulífi og fækkun íbúa hefur lengi verið
viðvarandi á svæðinu. Miklir möguleikar eru í ferðaþjónustu sem er rótgróin sunnan til í
Þingeyjarsýslum. Sauðfjárrækt er mjög sterk á austasta svæðinu, til dæmis í Öxarfirði og þar er
nokkur ferðaþjónusta tengd þjóðgarðinum. Þar eru einnig jarðhitaauðlindir, orka sem þegar er notuð
í fiskeldi. Húsavík er sjávarútvegsbær en einnig þjónustukjarni, bæði með opinbera þjónustu og aðra
þjónustu og ferðaþjónusta í miklum vexti. Vinnusóknarsvæði í kringum þéttbýlið að Kópaskeri nær
norður að Leirhöfn og inn í Öxarfjörð. Svæðið er mikið landbúnaðarsvæði. Í samanburði við
landsmeðaltal er hlutfall þeirra sem lokið hafa háskólaprófi lægra á Norðausturlandi og nokkuð fleiri
sem lokið hafa starfsnámi í framhaldsskóla eða hafa grunnskólapróf eða minna. Að öðru leyti er
svæðið nokkuð í takt í landsmeðaltalið (Byggðastofnun, 2012).
Vinnusóknarsvæði
Sex vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaða eru á Norðurlandi eystra:
•
Fjallabyggð (2.035)
•
Eyjarfjarðasvæðið (22.130)
•
Húsavík og nágrenni (3.689)
•
Kópasker og nágrenni (354)
•
Raufarhöfn (196)
•
Þórshöfn og nágrenni (614)
Vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaða á Tröllaskaga nær frá Siglufirði inn í Fljót, að Haganesvík. Um
Héðinsfjarðargöng tengist það svæði þéttbýlisstöðunum við Eyjafjörð þó einkum Ólafsfirði og Dalvík. Í
þessari umfjöllun eru teknir saman þéttbýlisstaðirnir Siglufjörður og Ólafsfjörður sem saman mynda
sveitarfélagið Fjallabyggð. Eyjafjörður allur telst eitt vinnusóknarsvæði, fyrir utan Ólafsfjörð eins og
áður segir. Á Eyjafjarðarsvæðinu eru sex sveitarfélög fyrir utan Fjallabyggð. Þau eru; Dalvíkurbyggð,
Hörgársveit, Akureyrarkaupstaður (Hrísey og Grímsey teljast til þess sveitarfélags), Eyjafjarðarsveit,
Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Vinnusóknarsvæðið næst Húsavík nær austur um
Tjörnes í Öxarfjörð og til suðurs um Lauga að Reykjahlíð og Mývatni. Innan þess svæðis eru þrjú
sveitarfélög; Þingeyjarsveit, Tjörneshreppur og Norðurþing. Kópasker og nágrenni er eitt
vinnusóknarsvæði og það sama á við um Raufarhöfn og Þórshöfn. Í Langanesbyggð eru tveir
þéttbýliskjarnar, annars vegar Þórshöfn og hins vegar Bakkafjörður, en mikil fólksfækkun hefur verið
á Bakkafirði síðastliðin ár.
Tafla 3. Vinnusóknarsvæði á Norðurlandi eystra - nokkrar kennitölur
Tafla 4. Vinnusóknarsvæði á Norðurlandi eystra - nokkrar kennitölur
Eins og áður segir er svæðið mjög stórt og mismunandi hvað varðar atvinnulíf, íbúaþróun og
meðaltekjur. Meðaltekjur eru yfir landsmeðaltali í Fjallabyggð á meðan þær eru töluvert undir
landsmeðaltali í Norðurþingi. Tölur um meðaltekjur fyrir vinnusóknarsvæði Húsavíkur ná yfir allt
sveitarfélagið Norðurþing þar sem ekki fékkst sundurgreining á þeim eftir einstökum svæðum innan
sveitarfélagsins og því eru ekki birtar sér tölur fyrir vinnusóknarsvæðin Kópasker og Raufarhöfn.
Lánveitingar Byggðastofnunar og samfélagsleg áhrif
Útlán Byggðastofnunar til Norðausturlands stóðu í lok apríl s.l. í 4.523 mkr eða um 27% af útlánasafni
stofnunarinnar og vanskil voru 5,91
% af útlánum á svæðinu. Á bak við
þessi útlán standa um 1011
stöðugildi á Norðausturlandi en
það þýðir um 4,5 mkr/stöðugildi.
Stærstur
hluti
lána
Byggðastofnunar á Norðurlandi
eystra er til sjávarútvegs eða um
41%. Í Fjallabyggð er 84% lána til
sjávarútvegs.
Á
vinnusóknarsvæðinu
í Eyjafirði
Kennitölur - vinnusóknarsvæði
Fjallabyggð
Akureyri
Húsavík
Lá n Byg g ð a sto fnuna r - sta ð a 30.4.2012
1.232.086.978 2.108.225.879
843.882.110
se m hlutfa ll a f he ild a rlá nve iting um
7,35%
12,57%
5,03%
Va nskil
137.660.337
57.701.765
70.714.832
se m hlutfa ll a f va nskilum á svæ ð inu
11,17%
2,74%
8,38%
Íb úa fjö ld i 1. ja núa r 2012
2.035
22.130
3.689
Íb úa fjö ld i - hlutfa ll íb úa la nd sins
0,64%
6,92%
1,15%
Sta rfa fjö ld i hjá við skip ta vinum BST
288,50
371,50
219,00
Me ð a lte kjur á la nd inu ö llu
4.077.900
4.077.900
4.077.900
Me ð a lte kjur á á ri
4.201.840
3.877.050
3.531.832
H lutfa ll a f me ð a lte kjum á la nd inu
103%
95%
87%
Km frá hö fuð b o rg a rsvæ ð i í þ é ttb ýliskja rna
386
388
479
Kennitölur - vinnusóknarsvæði
Kópasker
Raufarhöfn Þórshöfn
Lá n Byg g ð a sto fnuna r - sta ð a 30.4.2012
247.980.441
66.169.886
24.317.913
se m hlutfa ll a f he ild a rlá nve iting um
1,48%
0,39%
0,15%
Va nskil
870.576
0
545.708
se m hlutfa ll a f va nskilum á svæ ð inu
0,35%
0,00%
2,24%
Íb úa fjö ld i 1. ja núa r 2012
354
196
614
Íb úa fjö ld i - hlutfa ll íb úa la nd sins
0,11%
0,06%
0,19%
Sta rfa fjö ld i hjá við skip ta vinum BST
49,00
25,00
3,00
Me ð a lte kjur á la nd inu ö llu
4.077.900
4.077.900
4.077.900
Me ð a lte kjur á á ri
-
-
3.875.746
H lutfa ll a f me ð a lte kjum á la nd inu
-
-
95%
Km frá hö fuð b o rg a rsvæ ð i í þ é ttb ýliskja rna
576
610
638
41%
22%
8%
18%
2%
6%
3%
Sjávarútvegur
Ferðaþjónusta
Landbúnaður
Iðnaður
Byggingar- og
mannvirkjagerð
Mynd 1. Norðurland eystra - skipting lánasafns Byggðastofnunar eftir
atvinnugreinum m.v. stöðu 30. apríl 2012
dreifast lán stofnunarinnar á allar atvinnugreinar sem endurspeglar fjölbreytt atvinnulíf á þessu svæði
en mest hefur þó verið lánað til iðnaðar eða um 36%. Lánað hefur verið til flestra atvinnugreina á
Húsavíkursvæðinu en þó langmest til ferðaþjónustu eða um 74%. Lánveitingar stofnunarinnar
endurspegla atvinnulífið á svæðinu í kringum Kópasker en tæp 82% af lánunum þar eru til
einstaklinga og fyrirtækja í landbúnaði. Á svæðinu kringum Raufarhöfn skiptast lánveitingar á tvær
atvinnugreinar, 65% sjávarútvegi og 35% í ferðaþjónustu. Ekki eru mörg fyrirtæki og einstaklingar á
þessu svæði með lán hjá stofnuninni, einungis þrjú. Það er ekki tilkomið vegna þess að stofnunin láni
ekki á þetta svæði, þvert á móti þá eru allar umsóknir um lán frá Raufarhöfn skoðaðar með mjög
opnum hug og Byggðastofnun meðvituð um mikilvægi þess að styðja með öllum mögulegum ráðum
við uppbyggingu atvinnulífs á þessu svæði. Ekki er þar með sagt að stofnunin geti vikið frá reglum um
lánveitingar, en byggðasjónarmið hljóta að vega þungt þegar metnar eru umsóknir af þessu svæði.
Lánin á vinnusóknarsvæðinu í kringum Þórshöfn skiptast niður á tvær atvinnugreinar, 72% í
landbúnaði og 28% í iðnaði. Samfélagsleg áhrif lánveitinga stofnunarinnar eru töluverð í Fjallabyggð
þar sem stofnunin hefur stutt vel við bakið á ferðaþjónustuuppbyggingu á svæðinu, auk stórra
verkefna á sviði nýsköpunar og sjávarútvegs. Áhrifin eru líka töluverð í Norðurþingi en minni í
Langanesbyggð og Akureyri enda telst það svæði varla með þegar talað er um markaðsbrest varðandi
lánsfjármögnun til fyrirtækja.
Dostları ilə paylaş: |