Metanbílar til framtíðar Fyrirlestur fyrir almenning



Yüklə 465 b.
tarix02.03.2018
ölçüsü465 b.
#29105


Metanbílar til framtíðar


Yfirlit

  • Almennt um jarðefnaeldsneyti

  • Gasmyndun og loftmengun

  • Um bruna eldsneytis

  • Metan á Íslandi



Almennt um jarðefnaeldsneyti

  • Jarðefnaeldsneyti er almennt skipt í 3 flokka

    • Gas
    • Olíu
    • Kol


Um gas

  • Jarðgas eða náttúrulegt gas

    • Er mest metan (CH4)
      • En líka etan (C2H6) og etylen (C2H4), sem notað er í plastiðnaði
      • Óhreinindi í jarðgasi eru oftast koldíoxíð (CO2), brennisteinsvetni (H2S) og vetni (H2)
      • Líka selt sem CNG (þjappað jarðgas) og LNG (jarðgasvökvi)
  • Kósangas

    • Própan (C3H8) og bútan (C4H10)
    • Líka kallað LPG (olíugasvökvi)


Um kol

  • (Mór)

  • Brúnkol

  • Steinkol

    • Kol eru mjög mismunandi með tilliti til:
      • Orkugildis
      • Öskumagns
      • Óhreininda
      • Tjöruinnihalds
      • O.fl.
    • Þessir þættir skipta kolum upp í marga mismunandi flokka


Um olíu

  • Bensín

  • Steinolía

  • Létt brennsluolía

    • Gasolía
      • Díselolía
  • Þyngri brennsluolía

    • Þyngri eimuð olía
    • Svartolía af mörgum mismunandi gerðum
      • Flokkast í marga flokka svipað og kol


Myndun jarðefnaeldsneytis

  • Kol, olía og gas myndast við lífrænt niðurbrot á timbri, gróðri eða lífrænu seti

  • Hvað myndast fer eftir aðstæðum á hverjum stað og þeim tíma sem liðinn er frá því að niðurbrotið átti sér stað

  • Gas myndast við hratt niðurbrot á auðbrjótanlegu efni eins og t.d. sorpi



Gasmyndun í urðunarstöðum



Hvað er loftmengun?

  • Við tölum um mengað andrúmsloft þegar styrkur lofttegunda eða ryks eykst (eða minnkar) af manna völdum þannig að styrkur lofttegundanna getur verið hættulegur heilsu fólks, gróðri eða umhverfinu á annan hátt



Gasmengun á urðunarstöðum

  • Metangas er miklu kraftmeiri gróðurhúsalofttegund en koldíoxíð

  • Til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda frá urðunarstöðum og öðrum stöðum (kúabúum og svínabúum) þar sem metan myndast þá er því oft brennt á staðnum

  • Best er að geta nýtt orkuinnihald metans með því að nýta það í stað annars eldsneytis sem unnið er sérstaklega úr jörðu



Um hreinsun á gasi

  • Mest allt gas þarf að hreinsa áður en það er brennt sem eldsneyti

  • Gas sem myndast á urðunarstöðum þarf að hreinsa heldur meira en venjulegt jarðgas

  • Við hreinsunina er fjarlægt koldíoxíð (CO2), brennisteinsvetni (H2S), ammoníak (NH3) og vetni (H2)

  • Loks þarf að tryggja að ekki sé vatn í gasinu



Um bruna eldsneytis

  • Dæmi um hreinan bruna:

    • Metan + súrefni => koldíoxíð + vatn + varmi
    • CH4 + 2 O2 => CO2 + 2 H2O + varmi
  • Raunveruleikinn getur verið annar:

    • gas + andrúmsloft => koldíoxíð + vatn + kolmonoxíð + köfnunarefnisoxíð + óbrunnið eða hálfbrunnið gas + brunaleifar allra óhreininda í gasi + brunaleifa allra efna í andrúmslofti sem geta brunnið við þetta hitastig
    • Bensín + andrúmsloft => koldíoxíð + vatn + kolmonoxíð + köfnunarefnisoxíð + óbrunnið eða hálfbrunnið bensín + brunaleifar allra óhreininda í bensín + brunaleifa allra efna í andrúmslofti sem geta brunnið við þetta hitastig
    • Sama gildir um bruna díselolíu, þar kemur bara inn “óbrunnin eða hálfbrunnin díselolía + brunaleifar allra óhreininda í díselolíu” og hitastig við bruna er annað
  • Gasið er yfirleitt mun hreinna heldur en bensín eða díselolía og því brennur það betur



Hreinsibúnaður á bílvélar

  • Bensínvélar hafa vel þróaðan hreinsibúnað, þrívirkir hvarfakútur, sem hreinsa yfir 95% af kolmonoxíði, vetniskolefnum og köfnunarefnisoxíðum

    • CO + HC + NO => CO2 + H2O + N2
  • Sams konar hreinsibúnaður virkar vel á metanknúna bíla



Bílar sem brenna metani

  • Vélar geta brennt hreinu metani með sérstökum gaskveikjukerfi til að kveikja í metaninu (oftast stærri bílar)

  • Mikil kostur er að stórar gasvélar eru mun hljóðlátari en stórar díselvélar

  • Einnig er hægt að nota lítið breyttar bensínvélar sem nota bensín til að starta vélinni og skipta svo yfir á metan eftir að vélin er orðin heit



Samanburður á útblæstri

  • Útblástursefni miðað við bensínvél:

    • Koldíoxíð 20% minna Kolmónoxíð 74% minna Köfnunarefnisoxíð 36% minna Hærri kolvetni 60% minna
  • Útblástursefni miðað við díselvél:

    • koldíoxíð 20% minna Kolmónoxíð 90% minna Köfnunarefnisoxíð 60% minna Hærri kolvetni 80% minna
  • Þetta er af heimasíðu metan. Þarna er ekki nefnt að útblástur lægri kolvetna er oftast meiri frá metanknúnum bílum samanborið við bensín-og díselbíla



Metan í Álfsnesi

  • 1 Nm3 af hauggasi samsvarar: 0,57 Nm3 af hreinsuðu metani 97% hreinu 0,41 kg af hreinsuðu metani 97% hreinu 5,8 kWh af hráorku. 1 Nm3 af hreinsuðu metani = 1,12 lítrar af bensíni Orkulegt bensínjafngildi 95 oktan.



Metan í Álfsnesi

  • Á Íslandi í dag eru örfáir metanknúnir bílar samanborið við það magn sem hægt er að fá frá Álfsnesi

  • Metan á Íslandi dugar á nokkur þúsund fólksbíla, en er nú nýtt á nokkra tugi

  • Sigrún fjallar nú meira um metanbílana, en hún á einn slíkan



Lokaorð

  • Takk fyrir góða áheyrn



Yüklə 465 b.

Dostları ilə paylaş:




Verilənlər bazası müəlliflik hüququ ilə müdafiə olunur ©genderi.org 2024
rəhbərliyinə müraciət

    Ana səhifə