1
Nettun á debet og kredit færslum
Þegar breytingar eru gerðar í AP Viðskiptaskuldir (AP), t.d. þegar númer viðfangs er breytt þá
myndast ný færsla sem flyst í biðskrá viðkomandi stofnunar. Áður en flutningur á sér stað úr biðskrá í
FA Eignakerfið (FA) þá er möguleiki að eyða færslur í biðskránni, en ef það er ekki gert þá flytjast
röngu færslurnar ásamt þeirri réttu yfir í FA.
Það er mikilvægt að leiðrétting netti út áhrif bókunar, þ.e. myndi ekki hagnað, tap eða fyrningar-
færslu sem skekkir GL Fjárhag (GL) stofnunar.
Þrjár mögulegar aðstæður sem geta komið upp:
1.
Debet og kredit færslur inní FA.
Gera þarf ráðstafanir að netta út debet / kredit færslurnar sem eru með sambærilegum
bókunarsteng debet og kredit, þ.e. svo þær myndi ekki fjárhagslegar færslur í GL.
Til að losna við hagnað, tap og fyrningabókanir er farin sú leið að breyta „Núverandi
kostnaður“ upphæð í 0 áður en gerð er úrelding fyrir debet og kreditfærsluna.
2.
Debet og kredit færslur inní biðskrá.
Áður en flutningur á sér stað úr biðskrá í FA þá er möguleiki að eyða færslum í biðskránni þar
sem sambærilegur bókunarstengur debet og kredit er til staðar, ef það er ekki gert þá flytjast
röngu færslurnar ásamt þeirri réttu yfir í FA og framkvæma þarf leiðréttingar samanber lið 1.
3.
Leiðrétting á viðfangi milli tímabila.
Upphafleg eignfærsla með eignanúmeri er til staðar í FA, en með röngu viðfangi.
Leiðrétting fer fram með þeim hætti að viðfanganúmer er leiðrétt í FA inná svæðinu
„Úthlutanir“ þar sem bókunarstreng er breytt sjá leiðbeiningu Leiðrétting á viðfangi – Ferli
(http://www.fjs.is/fraedsla-og-verklagsreglur/kennsluefni-og-handbaekur/orri-fjarhagskerfi/),
huga þarf sérstaklega að flutningsdegi.
Ferli leiðréttinga samkvæmt lið 1.
Til að losna við hagnað, tap og fyrningabókanir er farin sú leið að breyta „Núverandi kostnaður“
upphæð í 0 áður en gerð er úrelding fyrir debet og kreditfærsluna.
DÆMI: Eignanúmer: 428324 (debet) / 428322 (kredit).
FA Eignakerfi > Eignir > Vinnusvæði eigna > Finna eignir > Eignanúmer, t.d. 428324 > Úthlutanir >
Fyrningarbækur.
2
Fara inní „Fyrningarbækur“, skrá inn númer fyrningarbókar og breyta „Núverandi kostnaður“ í 0.
Fara inní „Úreldingar“, skrá inn númer fyrningarbókar og skrá inní reitin „Úreldingardag“ upphaflegan
kaupdag eignar sem er 28.03.2017 í þessu tilfelli. Skrá inní athugasemd texta, t.d. Úrelding á debet/
kredit.
Endurtaka síðan ferlið og færa út kreditfærsluna (428322).