24
og nauðsynlega þarf að bæta úr. Framlög til rannsóknanna hafa verið stopul og of lág til að hægt sé
að halda úti metnaðarfullu rannsóknastarfi og miðla umbeðnum upplýsingum út í vísindasamfélagið,
svo sem á fundum vísindanefndar NAMMCO. Til að hægt verði að rækja þessar skyldur Íslendinga um
rannsóknir þarf að koma til 30 millj. króna framlag á ári. Þá væri hægt að ráða 2 starfsmenn til
viðbótar við þá sem fyrir eru (1 frá Veiðimálastofnun og 1/2 frá Hólum) og auk þess uppfylla kröfur
NAMMCO um upplýsingar um stöðu selastofna við strendur Íslands. Jafnframt þarf að koma til
eingreiðsluframlag að lágmarki 10 milljónir til uppsetningar á frystum undir sýni sem og endurbóta
rannsóknaraðstöðu. Mælt er með samningi um fast framlag til 5 ára til að byrja með og að gerður
verði á sama tímabili þjónustusamningur við ríkið um umsjón ákveðinna verkefna, svo sem reglulegt
stofnstærðarmat, móttöku á hjáveiddum sel til sýnasöfnunar, merkingar kópa árlega, geymslu á
sýnum, vöktun og utanumhald á selveiðum við strendur Íslands. Allt eru þetta verkefni sem eru á
hrakhólum í dag en nauðsynlegt er að sinna.
4.5 Efling Fæðingarorlofssjóðs
Verkefni 4.5 – Efling Fæðingarorlofssjóðs
Ný stöðugildi
2
Flutt stöðugildi
2
Áætlaður kostnaður
30 m.kr.
Ábyrgð og framkvæmd
Velferðarráðuneytið, Vinnumálastofnun
Tímaáætlun
2015
Flutningur Fæðingarorlofssjóðs til Hvammstanga er dæmi um vel heppnaðan flutning starfa á
landsbyggðina. Mikilvægt er að standa vörð um starfsemi sjóðsins á Hvammstanga og leita leiða til að
efla hana, fjölga verkefnum sjóðsins sem og starfsfólki. Lögð er áhersla á að sjóðnum verði tryggð
umgjörð til að halda áfram eftirliti með greiðslum, en það hefur sparað ríkissjóði verulegar fjárhæðir,
og verði sköpuð 2 störf til að sinna eftirliti og greiningarvinnu. Einnig er lagt til að til viðbótar við
núverandi verkefni verði flutt til sjóðsins verkefni sem tengjast greiðslu ættleiðingarstyrkja sem og
greiðslum til foreldra langveikra og alvarlegra fatlaðra barna sem skapar u.þ.b. 2 störf. Stöðugildi hjá
Fæðingarorlofssjóði á Hvammstanga eru nú 12 auk ræstinga.
4.6 Hvíldarinnlagnir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hvammstanga
Verkefni 4.6 – Hvíldarinnlagnir á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Hvammstanga
Ný stöðugildi
4
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
35 m.kr á ári
Ábyrgð og framkvæmd
Heilbrigðisráðuneytið
Tímaáætlun
2015
Starfsemi HVE Hvammstanga hefur dregist saman á undanförnum árum. Á árinu 2008 voru þar 35
stöðugildi en eru í ár 28. Nægilegt húsrými er til að opna þar sérstaka deild með 8 plássum fyrir
hvíldarinnlagnir
allt
að
6
vikur
í
senn
fyrir
fólk
af
Norðvesturlandi
öllu.
25
4.7 Skráningarverkefni kirkjubóka
Verkefni 4.7 – Skráningarverkefni kirkjubóka
Ný stöðugildi
3
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
15 m.kr. á ári
Ábyrgð og framkvæmd
Innanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið,
Þjóðskjalasafn
Tímaáætlun
2015–2017
Lagt er til þriggja ára verkefni í skráningu kirkjubóka í Húnavatns-og Skagafjarðarprófastdæmi í
samstarfi við Þjóðskjalasafn, héraðsnefnd prófastsdæmisins og héraðsskjalasöfn. Með því yrði bætt
aðgengi almennings og fræðimanna að mikilvægum upplýsingum. Skráningin færi fram í miðlægan
gagnagrunn í fjarvinnslu í Húnaþingi vestra.
Hjá Forsvar á Hvammstanga er margra ára reynsla í skráningu fyrir Þjóðminjasafn, Þjóðskjalasafn og
Alþingi. Hefur því skapast þekking og reynsla í fyrirtækinu fyrir slíka þjónustu. Þar er til staðar rými og
búnaður ásamt góðri þekkingu starfsfólks.
4.8 Bíodíselframleiðsla á Blönduósi
Verkefni 4.8 – Bíodíselframleiðsla á Blönduósi
Ný stöðugildi
1
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
10 m.kr.
Ábyrgð og framkvæmd
Blönduósbær, Nýsköpunarmiðstöð, sláturhús
Tímaáætlun
2015
Ráðinn verði verkefnisstjóri til að vinna að áreiðanleikakönnun og fýsileika framleiðslu á bíodísel úr
dýrafitu.
Þann 1. janúar 2014 tóku gildi lög nr. 40/2013 um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi.
Markmið laganna er að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum á landi og draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda með hagkvæmum og skilvirkum hætti.
Samkvæmt lögunum ber söluaðila eldsneytis á Íslandi að tryggja að minnst 3,5% af orkugildi
heildarsölu hans af eldsneyti til notkunar í samgöngum á öllu landinu á ári sé endurnýjanlegt
eldsneyti. Frá 1. janúar 2015 skal tryggja að minnst 5% af heildarorkugildi eldsneytis til notkunar í
samgöngum á landi á ári sé endurnýjanlegt eldsneyti. Endurnýjanlegt eldsneyti sem unnið er úr
lífrænum eða ólífrænum úrgangsefnum sem ekki er unnt að nýta til manneldis eða sem dýrafóður,
s.s. úr lífrænum úrgangi, má telja tvöfalt á við sama magn annars endurnýjanlegs eldsneytis.
Með hliðsjón af framansögðu hefur Blönduósbær ásamt Nýsköpunarmiðstöð Íslands unnið að því að
undirbúa framleiðslu á biodísel úr dýrafitu á Blönduósi. Horft hefur verið til 5000 tonna framleiðslu á
biodísel á Blönduósi.
Á Norðurlandi vestra eru rekin 3 stór sláturhús. 55% af lambfé og 50% af stórgripum á landsvísu er
slátrað í húsunum þremur. Samtals er áætlað að c.a. 2.000 tonn af fitu falli til á svæðinu.
Í febrúar 2014 var undirritaður einkaréttarsamningur á sölu á búnaði til framleiðslu á biodísel á milli
BDI-Bioenergy International AG, Blönduósbæjar og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. BDI er stærsti
framleiðandi í heimi fyrir lífdíseltækni og hannar og setur upp verksmiðjur um víða um heim.