Snorri Sturluson vaknar einn fagran fimmtudagsmorgun í líkama þínum. Hann þarf að gera allt sem þú ert vanur/vön að gera á fimmtudögum. Hann þarf s.s. að fara á fætur, klæða sig, borða morgunmat, tannbursta sig, fara í skólann og sækja þær tómstundir sem þú stundar eftir skóla (t.d. íþróttir, tónlistartíma, dans o.s.frv.). Lýstu deginum hjá Snorra, ritaðu hvað kom honum á óvart, hvernig allt kom honum fyrir sjónir, hvað hann gat heimfært yfir á sinn tíma og hvað hann hafði aldrei í lífinu gert áður. Þú matt vinna textann í tölvu eða skrifa hann á blað en hann þarf að ná yfir 2 handskrifaðar blaðsíður.
Góða skemmtun.
|