Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
74
í um 70 stöðugildum. Fyrrum Bæjarhreppur er dreifbýli og byggir mest á landbúnaði. Fyrir utan
landbúnaðinn og skólann er gistiheimili á Borðeyri, en engin verslun lengur né sjoppa þar. Staðarskáli
er mikilvægur vinnustaður fyrir íbúana. Eftirfarandi atriði komu m.a. fram á fundunum:
-
Í Húnaþingi vestra er rekið sláturhús á vegum Kaupfélags Vestur-Húnvetninga og Kaupfélags
Skagfirðinga (KS), eitt þeirra fimm stærstu á landinu.
-
Vöxtur á Hvammstanga er mestur í opinberri þjónustu.
-
Saumastofan á Hvammstanga hætti starfsemi, en prjóna- og saumastofan Kidka tók við og
prjónar voðir og rekur verslun.
-
Ný fyrirtæki eru í ferðaþjónustu.
-
Í Bæjarhreppi er sauðfjárrækt og tvö kúabú. Fyrir sameiningu var sveitarfélagið stærsti
vinnuveitandinn, en nokkrir starfa í Staðarskála. Auk þessa er bifreiðaverkstæði og smá
ferðaþjónusta á Borðeyri.
Sjávarútvegur:
Lítil útgerð er eftir á Hvammstanga, en þó eru tvær útgerðir með neta- og línubát og einn
dragnótabát. Rækjuvinnslan Meleyri er enn starfandi en er miklu minna fyrirtæki en áður var.
Vinnslan er stopul og byggir á aðkeyptu hráefni. Um 90% starfsmanna eru erlendir. Hafnarmannvirki
og starfsemi hafnarinnar er þungur baggi á sveitarfélaginu eins og víðar.
Ferðaþjónusta:
Eftirfarandi kom fram á fundunum:
Gisting og veitingar:
-
Bændur hafa byggt upp ferðaþjónustu með farfuglaheimilum og á vettvangi ferðaþjónustu
bænda. Jafnvel hætt með hefðbundinn búskap, eins og t.d. á Gauksmýri, Ósum á Vatnsnesi,
Brekkulæk og Dæli.
-
Það skortir gistimöguleika og það háir uppbyggingu í ferðaþjónustu. Gisting er eingöngu í
dreifbýli, en á Hvammstanga er gistiheimili í heimahúsi. Í Laugabakkaskóla er Edduhótel á
sumrin. Gistihúsið að Staðarflöt í Hrútafirði er opið allt árið. Tjaldsvæði eru á Hvammstanga
og Laugarbakka. Í Tangahúsi á Borðeyri er farfuglaheimili.
-
Í Víðigerði er boðið upp á veitingar og gistingu. Á Reykjum eru skólabúðir reknar af
sveitarfélagi og rekstraraðila. Þar er einnig ferðaþjónusta, sem og byggðasafn.
Afþreying:
-
Á Brekkulæk er boðið upp á hestaferðir og gönguferðir.
-
Ný fyrirtæki í ferðaþjónustu, m.a. Selasetur Íslands, Sveitasetrið á Gauksmýri, Ferðaþjónustan
á Ósum, Ferðaþjónustan í Dæli, Brekkulækur, Selasigling ehf.
-
Selasetrið á Hvammstanga hefur skapað mikla starfsemi og miklar væntingar tengjast því. Á
vegum þess er safn og sýning um selinn, auk rannsóknastarfsemi. Þar eru þrjú heilsárs
stöðugildi og allt að átta starfsmenn á sumrin. Selasetrið á samstarf við Hólaskóla,
Veiðimálastofnun o.fl. Fyrirtækið Brimill gerir út á selaskoðun og býður upp á sjóstangaveiði.
Kaffihúsið Hlaðan er við hliðina á Selasetrinu.
-
Grettistak var menningartengd ferðaþjónusta, þar sem átti að byggja upp þematengda
sýningu, tengda Grettissögu. Til staðar er sýning, húsnæði og leiksvæði fyrir víkingaleika á
Laugarbakka, sem er árviss víkingahátíð í ágúst. Svo er líka sveitamarkaður í sama húsnæði,
t.d. beint frá býli og handverk. Markaðurinn er vel sóttur.
-
Á Borðeyri er verið að skoða tækifæri í ferðaþjónustu, t.d. endurbætur á Riis-húsi. Ýmsar
hugmyndir eru um nýtingu þess.
Landbúnaður:
Þessi atriði komu fram á fundunum:
-
Það er vöxtur í hestamennsku og mikill árangur í ræktun.
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
75
-
Starfsemi sláturhússins á Hvammstanga hefur aukist. Þar er stærsta nautgripaslátrun á
landinu. Samstarf er við KS og verkaskipting þannig að meiri hrossaslátrun er á Hvammstanga
og meiri úrvinnsla. Þar er vottuð aðstaða til matvælavinnslu.
-
Nýliðun hefur orðið í landbúnaði á nokkrum búum á Vatnsnesi og í fyrrum Bæjarhreppi
einnig. Býli í fyrrum Bæjarhreppi eru 15 talsins. Bændur þurfa að sækja vinnu annað og
algengt að konurnar vinni t.d. í Staðarskála eða í skólanum.
Þjónusta, iðnaður:
Í Húnaþingi vestra er talsvert fjölbreytt þjónusta. Þessi atriði komu fram á fundum okkar:
-
Í Húnaþingi vestra eru tvö véla- og bifreiðaverkstæði, bílasala, tannlæknir, gullsmiður,
hárgreiðslustofa, fjármálaþjónusta og hefðbundin þjónusta iðnaðarmanna svo sem pípara,
málara, vélaverktaka, jarðvegsverktaka, rafvirkja og fleira. Á prjónastofunni starfa 5-6 manns.
-
Fæðingarorlofssjóður hóf starfsemi á Hvammstanga árið 2007 og þar starfa 12 manns, flest
konur. Ýmis störf við Fæðingarorlofssjóð krefjast háskólamenntunar og fjórir starfsmenn
fluttu á staðinn til að starfa þar. Forsvar er einkarekið fyrirtæki sem sinnir bókhaldsþjónustu.
Velferðarmál og samfélag
Heilbrigðis- og félagsþjónusta:
Hjá heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga (Heilbrigðisstofnun Vesturlands) er heilsugæsla og
öldrunarþjónusta, dvalarheimili eða öldrunardeild, sem og sjúkrarými. Við stofnunina eru tvö
stöðugildi lækna og 3-5 hjúkrunarfræðingar. Illa hefur gengið að fá lækna til starfa þarna.
Heilbrigðisstofnunin sameinaðist Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þegar stofnunum var
fækkað og sameinaðar árið 2010. Tannlæknirinn á Hvammstanga sinnir einnig Búðardal og Hólmavík.
Löggæsla hefur dregist saman.
Húsnæði:
Það var líf í fasteignamarkaði á Hvammstanga fyrir hrun og verð fór hækkandi, enda flutti fólk á
staðinn á þessum tíma. Eftir það hefur ríkt stöðnun. Framboð húsnæðis er þó nokkurt, en lítil
eftirspurn. Lítið af leiguhúsnæði en næg eftirspurn, fólk vill síður kaupa. Sveitarfélagið á 20 íbúðir,
félagslegar og almennar leiguíbúðir, t.d. tengt skólunum og þá sameign með ríkinu. Kennaraíbúðir eru
á Hvammstanga, Laugarbakka og á Reykjum. Sveitarfélagið hefur selt húsnæði, en ekki allt, því það er
alltaf eftirspurn eftir leiguhúsnæði. Íbúðir standa aldrei auðar í langan tíma. Á Borðeyri er nokkuð af
húsum í frístundaeign.
Umhverfi
Orku- og sorpmál:
Haustið 2010 var verið að leggja hitaveitu á Borðeyri og átti að leiða í hús sumarið 2011, en þó
eingöngu á Borðeyri, ekki í sveitum.
Samgöngur:
Þessi atriði komu fram á fundunum:
-
Það mætti lækka veginn um Holtavörðuheiðina og það, ásamt Sundabraut, væri besta
samgöngubótin.
-
Það er mikil atvinnusókn úr dreifbýli í þéttbýli. Vegir innan Húnaþings vestra eru víða vondir
malarvegir og eru t.d. hindrun fyrir ferðaþjónustu og skólaakstur. Það mætti setja á þá
klæðningu eins og þeir eru til að spara kostnað.
-
Umferð hefur minnkað norður Strandir með vegi um Arnkötludal, sérstaklega að vetrinum.
Þungaflutningar eru farnir af þessari leið og þessi minnkandi umferð gerir að verkum að
veginum er ekki haldið við, en þetta eru malarvegir og stundum mjög slæmir.