Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
82
-
Blönduvirkjun er í Húnavatnshreppi og sveitarfélagið fær fasteignagjöld af henni. Tekjurnar
skipta mjög miklu máli í fjárhag hreppsins. Nokkrir íbúar hans starfa við virkjunina.
-
Sú breyting hefur orðið s.l. 20 ár að fyrirtæki eru gjarnan hluti af stærri einingu, til dæmis
varðandi flutninga, matvöruverslun o.fl. Rafmagnsverkstæðið á Blönduósi er t.d. hluti af
Tengli á Sauðárkróki og matvöruverslunin er hluti af verslunarkeðjunni Samkaupum.
Fyrirtækin hverfa úr eignarhaldi heimamanna, annað hvort á önnur svæði eða verða hluti af
keðju. Þó svo þjónustan batni fylgir þessari þróun samt óvissa.
-
Gagnaver er tækniiðnaður og mörg sprotafyrirtæki gætu sprottið í kringum það. Búið er að
taka frá 270 hektara svæði rétt við Blönduós og skipuleggja fyrir þessa starfsemi, sem er
geymsla á rafrænum gögnum fyrir Morgan-Stanley bankann. Í fyrstu er áætlað að til verði 20
störf við fyrirtækið og yrði kannski allt að 100 störf með tímanum.
-
Á Blönduósi er hátt hlutfall opinberra starfa. Hjá lögreglunni starfa sex manns og þjóna allri
sýslunni.
-
Á Skagaströnd eru rúm 30 opinber störf, sem er óvenjulegt fyrir svo lítinn stað.
Atvinnuleysistryggingasjóður (Vinnumálastofnun) er stærsti vinnustaðurinn og kom á staðinn
vegna áhrifa frá hruninu. Þar eru 25 störf en var ætlað um 10 upphaflega.
-
Austur-Húnavatnssýsl er eitt atvinnusvæði, t.d. sækja 10 manns frá Blönduósi og nágrenni
vinnu á Skagaströnd, t.d. á Vinnumálastofnun, þar sem starfa næstum eingöngu konur.
Eitthvað er um að fólk flytji á staðinn til að sinna þessum opinberu störfum. Annars vantar
yfirleitt störf fyrir menntaða.
Sjávarútvegur:
Eftirfarandi kom m.a. fram á fundunum:
-
Skagaströnd lifði á sjávarútvegi, flestir unnu í Hólanesi, í rækjunni eða voru á sjó. Vissulega er
sjávarútvegur enn fyrirferðarmikill, því togari landar á staðnum og mikill hluti áhafnar
búsettur þar. Engin vinnsla er á staðnum lengur. Þar er fiskmarkaður með talsverð umsvif.
Örvar landar á Króknum en Arnar á Skagaströnd, en eignarhald og umsýsla er á Króknum. Svo
eru grásleppuveiðar og smábátar í strandveiði.
-
Fiskverkunin Norðurströnd á Blönduósi hefur átt í erfiðleikum með hráefnisöflun, margir
dagar féllu niður í vinnslu í vetur (2010-2011). Vinnslan byggir á byggðakvóta og leigukvóta.
Ferðaþjónusta:
Margt hefur gerst í ferðaþjónustu á þessu svæði á undangengnum árum. Nefna má uppbyggingu á
Þingeyrum, Vatnsdæluverkefni, söfn og setur. Aðsókn að söfnunum á svæðinu eru um 4000 manns
árlega. Eftirfarandi atriði voru einnig rædd á fundunum:
Gisting og veitingar:
-
Húnaver er félagsheimili og ferðaþjónusta á sumrin, þar er tjaldsvæði og gisting. Gisting er
einnig í félagsheimilinu Dalsmynni (við Auðkúlurétt).
-
Á Blönduósi er vöxtur í ferðaþjónustu, t.d. með tilkomu veitingastaðarins Pottsins og
pönnunnar, starfsemi sem gengur vel. Gott tjaldsvæði í eigu sveitarfélagsins, en einkaaðili
með reksturinn. Sumarhúsum á tjaldsvæðinu hefur fjölgað og eru nú 21 talsins, sum í fastri
leigu. Hótelið er lokað að vetrinum og það veikir ferðaþjónustu á svæðinu. Á Blönduósi er líka
gistiheimili í gamla pósthúsinu, sem hótelið á. Potturinn sér um skólamáltíðir og er með
veitingasölu opna allt árið. Fyrirtækið er að færa út kvíar með Eyvindarstofu á efri hæð, tengt
sögum af Fjalla-Eyvindi. Þar er nú sýning og veitingarými.
-
Það er lítið framboð á gistingu á Skagaströnd. Þó er heimagisting, eitt sumarhús, fjallakofi og
skíðaskáli, gott tjaldsvæði, en ekkert hótel. Á Skagaströnd er Kántrýbær og veitingastaðurinn
Bjarmanes sem bæði eru kaffi- og menningarhús, en Bjarmanes er lokað að vetrinum.
Sveitarfélagið á húsið og leigir út til rekstrar. Einnig er boðið upp á veitingar í Kántríbæ og
söluskálanum allt árið. Að vetrinum er opið virka daga vegna skólamötuneytis, svo á kvöldin
um helgar og alltaf opið að sumrinu.
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
83
Afþreying:
-
Til Húnavatnshrepps heyra margar perlur; Hveravellir, Vatnsdalur og Þingeyrar. Á Þingeyrum
er kirkjan, klausturstofa og boðið upp á leiðsögn um staðinn. Sveitarfélagið ber ábyrgð á
Hveravöllum og uppbyggingu þar og þangað koma tugir þúsunda ferðamanna á ári og
Hveravellir eru líka vinsæll áfangastaður að vetrinum. Aðstaðan annar ekki aðsókn. Náttúran
er viðkvæm og svæðið er friðað. Nokkrir fjölsóttir ferðamannastaðir landsins eru á válista, þ.á
m. Hveravellir. Hveravallafélagið rekur þá þjónustu sem þar er og sveitarfélagið kemur að því.
Ríkið á ekki aðild að þessu, en ætti að kosta það að hluta. Menn hafa velt fyrir sér gjaldtöku
og ýmsum öðrum leiðum til að mæta kostnaði.
-
Sundlaugin nýja á Blönduósi hefur trekkt að og ferðamenn staldra frekar við. Svo koma líka
íþróttafélög til að æfa í lauginni.
-
Golfvöllurinn er mikið aðdráttarafl á Skagaströnd. Hægt er að spila á þremur völlum sama
daginn, á Blönduósi, Skagaströnd og Sauðárkróki. Í vinnslu er að hafa kort fyrir alla velli í
samstarfi félaganna sem að þeim standa.
-
Listamiðstöðin Nes er aðdráttarafl, þótt hún sé ekki opin sem ferðaþjónusta. Hjá Spákonuhofi
er spáð fyrir fólki. Þar verður líka Þórdísarstofa þar sem saga Þórdísar spákonu er rakin í máli
og myndum. Svipuð sýning er hjá Sögusetrinu í Öskjuhlíð. Þá hefur Kántrísetur verið opnað í
Kántríbæ. Árnes, elsta húsið á staðnum var gert upp og er opið yfir sumarið.
Ýmis atriði:
-
Á þessu svæði eru nokkur öflugustu laxveiðisvæði landsins. Laxveiðifélög leigja árnar. Leigan
gefur tekjur til bænda, en annars koma veiðimennirnir oftast með allt með sér. Skilur
vissulega lítið eftir af tekjum á svæðinu. Einn vannýttur möguleiki eru veiðihúsin. Vantar
markaðssetningu og að einhver nýti þau tækifæri.
-
Gestir Listamiðstöðvarinnar setja mark sitt á samfélagið. Þeir eru íbúar tímabundið, ekki
ferðamenn. Samt engin þjónusta sem tengist þessu eins og vonast var til, t.d. engar ferðir, en
unnið er að því að auka þjónustu við þá. Viðburðir í tengslum við miðstöðina hafa hins vegar
dregið að gesti úr nágrenninu og víðar að.
-
Það eru tvær stjórnir yfir Textílsafni og Heimilisiðnaðarsafni og tveir starfsmenn, en ætti
kannski að samreka þetta. Kvennaskólinn er mjög fallegt hús og þar gæti verið uppbygging.
Landbúnaður:
Auk hefðbundins landbúnaðar í Austur-Húnavatnssýslu eru þar margar af bestu laxveiðiám á landinu.
Þessi atriði m.a. fram á fundunum:
-
Landbúnaður í Húnavatnshreppi er blandaður, kýr, sauðfé og mikið af hrossum. Miklir
möguleikar eru í sauðfjárrækt, t.d. er mikið landrými. Töluvert er um að utanaðkomandi
aðilar kaupi jarðir.
-
Nokkrar laxveiðár á þessu svæði gefa tekjur. Nokkrar jarðir sem eiga veiðirétt hafa farið úr
ábúð, en þessar jarðir eru eftirsóttar.
-
Jarðir í Húnavatnshreppi eru um 100 talsins en ekki vitað um fjölda jarða í eigu
utanaðkomandi, þ.e. ekki í fastri ábúð. Jarðir í utanaðkomandi eigu veikja samfélagið, þær
skila líka litlu í tekjum.
-
Í Blönduósbæ eru 20 jarðir í ábúð, þó er ekki búskapur á þeim öllum.
-
Í Sveitarfélaginu Skagaströnd er ekki kúabúskapur en búið er með sauðfé og hross.
-
Á svæðinu eru veiðivötn, en vantar upp á grunngerð og erfitt að vita t.d. hver á veiðirétt
o.s.frv. Þó eru dæmi um að bændur bjóði upp á gistingu og veiði. Þessa þjónustu þyrfti að
skipuleggja betur, kortleggja veiðina og skipuleggja þjónustuna í tengslum við aðra þjónustu á
svæðinu.
-
Mjólkurstöðin á Blönduósi hætti nýverið starfsemi.
Þjónusta, iðnaður:
Blönduós er þjónustubær, t.d. fyrir landbúnað, en þar er einnig framleiðsla. Miklar væntingar eru
tengdar hugmyndum um gagnaver, en engin ákvörðun liggur fyrir enn. Nánari grein er gerð fyrir