Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
100
stofnaði Primex 1999 og þar starfa um 15 manns. Fyrirtækið fékk Nýsköpunarverðlaun
Íslands árið 2012.
-
Fiskvinnsla á Grenivík byggir á kvóta sem sveitarfélagið keypti, en er í eigu dótturfélags þess
sem heitir Sænes ehf.. Sænes er einskonar þróunarfélag, leggur t.d. fé í Pharmarctica.
-
Útgerð á Grenivík er öflug og þar eru um 35-40 störf tengd sjávarútvegi (vinnsla og
harðfiskur). Útgerðarfélagið Gjögur á þrjá báta og rekur frystihúsið. Þetta fyrirtæki er líka
með vinnslu í Grindavík. Einnig er gerður út togarinn Frosti frá Grenivík.
Fiskeldi:
-
Eitt lítið fiskeldisfyrirtæki er í Grýtubakkahreppi (ekki á Grenivík).
Ferðaþjónusta
Héðinsfjarðargöng munu vafalítið breyta miklu fyrir ferðaþjónustu í Fjallabyggð. Ferðaþjónusta í
Grýtubakkahreppi er ekki vera umfangsmikil, að Laufási undanskildum. Þessi atriði voru rædd á
fundunum:
Gisting og veitingar:
-
Veitingahús Rauðku á Siglufirði verða þrjú talsins og munu taka 260 manns í sæti, en einnig
verða í húsunum bíó og upplýsingamiðstöð. Rauðka á fleiri hús í kring, en ekki er full ljóst
hvaða starfsemi er fyrirhuguð þar. Tveir aðrir veitingastaðir eru á Siglufirði.
-
Á bæði Siglufirði og Ólafsfirði eru hótel og gistiheimili. Verið er að byggja við
Síldarminjasafnið, þar á að verða hótel. Tjaldsvæði eru í báðum bæjum í Fjallabyggð.
-
Gistiheimilið Sænes er það eina á Grenivík. Svo eru bændagistingar á tveimur stöðum. Í
þorpinu er ekkert kaffihús, en boðið upp á veitingar við verslunina.
Afþreying:
-
Boðið er upp á hvalaskoðun frá Ólafsfirði í samstarfi hótelsins og Norðursiglingar á Húsavík.
-
Verkefnið Fugl fyrir milljón er hugmynd sem upp kom á Ólafsfirði. Verðlaun eru fyrir bestu
fuglamynd frá Tröllaskaga. Töluverð aðsókn hefur verið að hótelinu vegna þessa verkefnis.
-
Samstarf er milli skíðasvæðanna í Eyjafirði um skíðapassa sem gengur á öll svæðin, bæði
Siglufjörður og Ólafsfjörður taka þátt.
-
Laufás er mikið aðdráttarafl og gestir eru kringum 19 þúsund árlega. Farþegar
skemmtiferðaskipanna fara ákveðinn hring með viðkomu þar.
-
Önnur afþreying fyrir ferðamenn í Grýtubakkahreppi er hestaleiga og hestaferðir á vegum
Pólarhesta, ferðir upp á Kaldbaksferðir einn-tvo mánuði á vetri og á Grenivík er
útgerðarminjasafn, opið á sumrin.
Landbúnaður:
Í Grýtubakkahreppi er mjólkurframleiðsla á nokkrum stórum búum og þar er líka sauðfjárrækt og stór
bú með kartöflurækt. Landbúnaður er ekki mikill í Fjallabyggð, en kannski meira frístundabúskapur.
Ólafsfjarðarmegin eru þrjár jarðir eftir þar sem stundaður er hefðbundinn landbúnaður.
Þjónusta, iðnaður:
-
Nokkuð öflugur framleiðsluiðnaður er í Fjallabyggð, ekki hvað síst á Ólafsfirði. Á Siglufirði er
fyrirtækið Siglufjarðarseigur með bátasmíði. Á Ólafsfirði eru smíðaðir sjúkrabílar og
slökkvibílar (Sigurjón Magnússon ehf.). Þar er einnig fyrirtækið Vélfag sem framleiðir
fiskvinnsluvélar, mest fyrir innanlandsmarkað. Á Grenivík er vélsmiðja sem þjónustar m.a.
sjávarútveginn og þar eru 6-7 störf.
-
Lyfjafyrirtækið PharmArctica á Grenivík er sex ára og gengur þokkalega, þar starfa 6-8 manns.
PharmArctica framleiðir lyf, snyrtivörur, krem o.fl. undir merkinu Apótekið . Möguleikar
hafa verið skoðaðir á að framleiða blautlyf (lyf t.d. gefin í æð) hér á landi, en
samningaviðræður hafa verið við bandarískt fyrirtæki.
-
Sparisjóðurinn á Siglufirði er með bakvinnslu fyrir lífeyrissjóði o.fl. Við bakvinnsluna starfa 40-
50 manns, mest konur. Sparisjóðirnir á Siglufirði og Ólafsfirði sameinuðust Sparisjóði
Skagafjarðar nýverið og Arion er helsti eigandi þeirra. Sjóðirnir hafa frekar aukið við
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
101
starfsmannafjölda en hitt. Á Grenivík starfar Sparisjóður Höfðhverfinga sem er í eigu
heimamanna og hefur starfað frá 1879. Þar er einnig bókhaldsþjónusta, eigandinn flutti til
Akureyrar, en rekur fyrirtækið áfram á Grenivík.
Opinber þjónusta:
Nokkur breyting varð við sameininguna í Fjallabyggð, m.a. vegna hagræðingar. Sýslumannsembætti
voru áður tvö á sitt hvorum þéttbýlisstaðnum í Fjallabyggð, en hafa nú verið sameinuð og embættið
staðsett á Siglufirði. Lögregla var sameinuð og fækkað í starfsliði. Starfsfólki sveitarfélagsins hefur
einnig fækkað. Þá hefur fækkað starfsfólki í heilbrigðisþjónustu. Efstu hæð sjúkrahúss á Siglufirði var
lokað.
Velferðarmál og samfélag
Heilbrigðis- og félagsþjónusta og önnur opinber þjónusta:
Í þjónustukönnuninni (sjá spurningalista í viðauka) kemur fram að íbúar Grenivíkur sækja talsvert
þjónustu til Akureyrar, m.a. er löggæslu sinnt þaðan. Lögregla er til staðar í Fjallabyggð, bæði á
Siglufirði og Ólafsfirði. Í báðum bæjum eru allir þjónustuþættir sem um er spurt sagðir vera til staðar.
Heilbrigðisþjónusta í Fjallabyggð er sögð góð. Heilsugæslustöð með lækna er á báðum
þéttbýlisstöðunum. Sjúkrahúsið á Siglufirði þjónar öllu sveitarfélaginu. Sjúkraflug hefur verið aflagt,
enda tekur það ekki skemmri tíma en að fá sjúkrabíl. Dvalarrými fyrir aldraða á Siglufirði er á
sjúkrahúsinu. Hornbrekka, dvalarheimili aldraðra á Ólafsfirði er á sama stað og heilsugæslan. Á
Grenivík er heilsugæsluútibú frá Akureyri. Heilbrigðisþjónusta er annars sótt til Akureyrar, tveir
læknar koma vikulega og svo er hjúkrunarfræðingur búsettur á staðnum. Þess utan starfa tveir
hjúkrunarfræðingar á dvalarheimilinu. Á dvalarheimilinu eru 10 rými og 12 manns í rúmlega sex
stöðugildum.
Fjölmenning:
Hjá Ramma starfa nokkrir útlendingar. Örfáir búa á Siglufirði og hafa búið þar lengi, flestir frá
Rúmeníu. Þeir komu fyrir u.þ.b. 15 árum. Í Ólafsfirði hafa verið hlutfallslega fleiri starfsmenn af
erlendum uppruna og meiri mannaskipti.
Húsnæði:
Í svörum við þjónustukönnuninni kemur fram að lítið framboð sé á íbúðarhúsnæði hvort heldur er til
kaupa eða leigu á þessu svæði. Þó er sagt nokkuð framboð á leiguhúsnæði á Grenivík.
-
Á Siglufirði er 17% íbúðarhúsnæðis í frístundabyggð. Fyrir nokkrum árum var gert átak og
gefin hús með þeim skilyrðum að gert yrði við þau (eða seld fyrir lítið). Mörg hús voru gerð
upp, en 40 hús í bænum eru byggð fyrir 1918. Það hefur jákvæð áhrif að húsin séu gerð upp,
en neikvæð rekstrarlega séð því eigendurnir eru ekki með lögheimili á staðnum. Húsin væru
samt í niðurníðslu eða horfin hefði þetta ekki komið til. Einnig eru til staðar eiginlegir
sumarbústaðir. Hús á Ólafsfirði eru í minna mæli í frístundaeign.
-
Húsnæðisskortur er í Fjallabyggð. Eldra fólk er eitt í stórum eignum og vill fá minna með
bílskúr, en slíkt er ekki til. Nokkur hreyfing varð á fasteignamarkaði eftir að göngin komu.
-
Það er húsnæðisskortur á Grenivík, sveitarfélagið á 10 íbúðir og vill ekki eiga fleiri. Það er
ekkert laust leiguhúsnæði fyrir fólk sem vill koma og áhættusamt að byggja. Eitthvað er um
að hús fari í frístundabyggð, en ekki mikið. Grýtubakkahreppur skipulagði frístundabyggð og
19 lóðir og þær seldust allar. Búið er að byggja 12 hús.
Umhverfi
Orkumál:
Hitaveita er í öllum þéttbýlisstöðunum sem hér um ræðir, en þó er að einhverju leyti kynt með
rafmagni í Grýtubakkahreppi.