Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
102
Samgöngur og fjarskipti:
Talsvert var rætt um áhrif Héðinsfjarðarganga á fundunum. Til dæmis um það hvort Siglfirðingar séu
tilbúnir til að taka á móti auknum straumi ferðamanna, hvort grunngerðin sé klár. Strákagöng og
Múlagöng eru flöskuhálsar og erfitt fyrir stóra bíla að fara í gegn. Héðinsfjörður er allur í einkaeign og
deildar meiningar um hvort einhver uppbygging eigi að vera þar. Sumir vilja hafa svæðið sem mest
óbreytt. Göngin munu breyta miklu fyrir þjónustu í þessum byggðum tveimur og hafa þegar haft áhrif
á atvinnulíf bæjanna, t.d. eru ákveðin fyrirtæki að hugsa til sameiningar.
Grýtubakkahreppur lét leggja ljósleiðara fyrir nokkrum árum og hitaveita var lögð í leiðinni.
Ljósleiðarinn er líka í sveitinni að hluta. Samgöngur eru ágætar.
Verslun og þjónusta
Í þjónustukönnuninni var spurt um 15 þætti varðandi verslun og þjónustu. Öllum þáttum var svarað
játandi, nema að ekki er til staðar stórmarkaður eða lágvöruverðsverslun. Líklega sækja íbúar
Ólafsfjarðar marga þessa þjónustuþætti á Siglufjörð þótt þess sé ekki getið í svörunum. Til dæmis er
vínbúð og bakarí á Siglufirði, sem og tölvuþjónusta og múrari, en ekkert af þessu á Ólafsfirði. Íbúar á
Grenivík sækja þjónustu til Akureyrar. Þar er þó matvöruverslun, tvær hárgreiðslustofur,
bókhaldsstofa, vélsmiðja, trésmiðja og bifreiðaverkstæði og næsti múrari er á Svalbarðsströnd.
Rekstraraðili matvöruverslunarinnar á Grenivík tekur að sér verkefni eins og að sjá um póstinn.
Verslunin gengur m.a. vegna þess að heimamenn versla þar.
Menntun
Tölur í þessum kafla eru frá skólaári 2010-2011. Eftirfarandi kom fram á fundunum:
-
Í Fjallabyggð er einn skólastjóri, einn leikskólastjóri, en leikskóladeild á báðum stöðum. Börn í
grunnskóla eru keyrð á milli. Með þessu næst fram hagræðing og sparnaður. Skólinn var í
fjórum byggingum en er núna í tveimur. Í grunnskóla eru 270 nemendur en um 140 í
leikskóla. Yngri krakkarnir voru á Ólafsfirði en eldri börnin á Siglufirði. Núna eru yngstu börnin
á báðum stöðum en þrír (sex) árgangar sitt á hvað, sem þýðir að börnum er ekið í þrjú ár í
stað fimm. Það er ekki einhugur meðal íbúa um þetta.
-
Í Grýtubakkahreppi eru tæplega 60 börn í grunnskóla og um 24 börn í leikskóla. Það er
jákvætt fyrir börn að vera í litlum skóla, þau fá svo mörg tækifæri. Grunnþjónusta í
sveitarfélaginu er mjög góð, góðir skólar, gott tómstundastarf og góð þátttaka og öflugt
íþróttastarf.
-
Samstarf var meðal sveitarfélaga við utanverðan Eyjafjörð um framhaldsskóla á Tröllaskaga,
Dalvík er með í þessu samstarfi. Skólinn er staðsettur á Ólafsfirði. Nemendur verða 170
talsins skólaveturinn 2011-2012. Krakkarnir úr Fjallabyggð fara nánast 100% í þennan skóla.
Unglingar úr Grýtubakkahreppi sækja framhaldsskóla alfarið til Akureyrar.
Menning
Margt er svipað í svörum fyrir þéttbýlisstaðina í Fjallabyggð í þjónustukönnuninni. Leikfélag starfar
t.d. á báðum stöðum, fleiri kórar en kirkjukór einnig. Samstarf er í flestum málaflokkum eftir
sameiningu og stutt að fara eftir opnun Héðinsfjarðarganga. Þó svo menningarlíf á Grenivík hafi ekki
verið sagt öflugt (á fundi okkar) þá er þar þó starfandi leikfélag. Á fundunum kom eftirfarandi fram:
-
Menningarlíf í Fjallabyggð er blómlegt, mikil tónlist og myndlist, sýningar, námskeið. Gallerí
og listvinnustofur eru á Siglufirði og Listhúsinu á Ólafsfirði. Leikfélög er starfandi á báðum
stöðum en líklegt að þau verði sameinuð. Kórar eru starfandi á báðum stöðum. Á Siglufirði
eru söfn eins og Síldarminjasafnið og Þjóðlagasetur sem er með ýmis verkefni, m.a. í
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
103
samstarfi við Norðurlönd. Síðastliðið sumar opnaði Ljóðasetur Íslands á Siglufirði. Á Siglufirði
eru hátíðir eins og Jónsmessuhátíð, Þjóðlagahátíð, Síldarævintýri, Reitir, alþjóðlegt verkefni
skapandi greina og Ljóðahátíð.
-
Í Ólafsfirði er sjómannadagshelgin haldin hátíðleg og Blúshátíð og Berjadagar eru árlegir
viðburðir. Náttúrugripasafn er í Ólafsfirði.
-
Menningarlíf í Grýtubakkahreppi er ekki eins öflugt og það gæti verið, trúlega er nálægð við
Akureyri áhrifavaldur á það. Hins vegar er þar öflug félagsstarfsemi.
Sameining, samstarf
Talsverðar breytingar hafa orðið á þjónustu í Fjallabyggð við sameininguna, til dæmis varðandi
skólahald eins og þegar er nefnt. Samstarf er um íþrótta- og félagsstarf. Heimaþjónusta var
sameinuð, en starfsmenn eru á báðum svæðum. Samstarf við önnur sveitarfélög breyttist einnig
nokkuð. Dregið hefur úr samstarfi við Dalvíkurbyggð. Samstarf er við Skagafjörð um málefni fatlaðra
og Dalvík er með í því. Í Grýtubakkahreppi er samstarf um félags- og skólaþjónustu og málefni
fatlaðra með þjónustusamningi við Akureyrarbæ, samstarf með minni sveitarfélögum við Eyjafjörð
(Eyþing), samstarf um AFE, byggingarfulltrúa, tónlistarskóla o.fl. Svo er aðild að framhaldsskólunum
með því að greitt er hlutfallslegt gjald til MA og VMA. Þetta kom fram á fundunum:
-
Héðinsfjarðargöng munu breyta miklu fyrir þjónustu í Fjallabyggð. Með sameiningu er hægt
að halda uppi þjónustustigi og samstarf eykst. Viss samdráttur hefur orðið vegna
hagræðingar við sameininguna.
-
Það getur verið erfitt að ákveða staðsetningu nýrra þjónustuþátta í Fjallabyggð og stundum
eru þeir settir á báða staði. Það er tvennt af ýmsu, tvær slökkvistöðvar, tvær bæjarskrifstofur
o.fl. Það er vissulega óhagræði að þessu, en það er samt gott fyrir íbúana.
-
Í Fjallabyggð er ekki áhugi á frekari sameiningu, en öðru gegnir um aukið samstarf. Verið er
að skoða hvernig standa eigi að samstarfi Fjallabyggðar við Dalvíkurbyggð og vilji er til að
auka samstarf við Skagafjörð. Það þarf að starfa á stærra svæði, það er ekki nóg að vera bara
inn á við eða í samstarfi á Eyjafjarðarsvæðinu. Samstarf í ferðaþjónustu beinist líka mikið
vestur á við og búið er að stofna samtök ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
-
Áhugi íbúa í Grýtubakkahreppi á sameiningu er ekki mikill. Menn telja samfélagið sjálfbært
þrátt fyrir íbúaþróunina og óttast að fá lakari þjónustu ef sameinað yrði. Sameining yrði þá
við Akureyri, það er svo mikið samstarf nú þegar. Frumkvæði á staðnum hyrfi, menn færu
bónveg að reyna að ná peningum. Félagið sem á aflaheimildirnar og fjármagnar eitt og annað
færi inn í hítina. Mögulega hefur samstarfsleiðin fjarlægt sameiningarþörf.
Stoðkerfi, byggðastefna
Stoðkerfið:
Fjallabyggð er nýtt svæði hjá AFE (Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar), þ.e. Siglufjörður var áður á
starfssvæði SSNV (Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra) en Ólafsfjörður var fyrir á starfsvæði
AFE. AFE hefur unnið með Grýtubakkahreppi að stefnumótun, uppbyggingu PharmArctica og málum
sem tengjast ferðaþjónustu o.fl.
Tækifæri til eflingar
Á fundunum komu fram eftirtaldar hugmyndir:
Unnið hefur verið að því að laða fjárfesta á svæðið með opnun siglingaleiða um
norðurheimskautið í huga. Kínverjar vilja leggja ljósleiðara norður fyrir. Þá snýr þetta einnig
að leit að olíu og námavinnslu á zinki á Grænlandi (Sítrónufirði). AFE hefur gert úttekt og
kortlagt þjónustu við ferðamenn og framboð á afþreyingu og möguleika tengda höfnunum.
Verið er að skoða uppbyggingu á Siglufirði í tengslum við þetta, þar er autt húsnæði og tankar