Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
109
-
Hótelin í Mývatnssveit eru fjögur, Reynihlíð, Sel, Gígur og Reykjahlíð. Gistiheimili eru Eldá,
(Bjarg) tvö í Vogum, Geiteyjarströnd, Skútustöðum, Stöng og svo er veiðihúsið. Tjaldsvæði
eru tvö og einnig eru gistiskálar. Svo er hægt að gista í heimahúsum í þorpinu.
Afþreying:
-
Aðsókn að safninu á Grenjaðarstað er lítil. Þar vantar þjónustuhús og aðstöðu. Sýning er á
sumrin í Laxárstöð.
-
Til stendur að stofna ferðamálasamtök Þingeyjarsveitar. Þetta nýja félag gæti skoðað
afþreyingarmöguleika.
-
Í Mývatnssveit er margvísleg afþreying, þar eru jarðböðin (opin allt árið), fuglasafnið í
Neslöndum (opið allt árið), Hike&bike að sumrinu með göngu- og hjólaferðir, skíðaferðir,
bátaleiga, hestaleiga, snjósleðar, jeppaferðir, golf, ferðir í Öskju og útsýnisflug. Veiðin í Laxá
gefur þó nokkrar tekjur.
-
Jólasveinaverkefnið er í nokkurri lægð. Fyrst varð mikil aukning í aðsókn og mest 2009, en
minnkaði síðan. Verkefnið hefur ekki staðið undir sér.
Landbúnaður:
Þessi atriði komu fram á fundunum:
-
Undanfarið hafa stór kúabú farið úr rekstri og mjólkurkvóti farið af svæðinu. Þetta eru jafnvel
góðar og vel staðsettar jarðir. Einhver endurnýjun hefur orðið, börn taka við af foreldrum,
fremur en fólk komi að og kaupi jarðir.
-
Svínabú í Pálmholti er uppeldisstöð fyrir grísi sem koma úr Eyjafirði og fara síðan til slátrunar.
-
Ekki er mikil nýsköpun í landbúnaði, nema gulrótarækt í Fnjóskadal og Akurseli í Öxarfirði.
Granastaðir taka þátt í Þingeyska matarbúrinu.
-
Í Mývatnssveit eru um 20 bú með sauðfjárbúskap, þar af eru átta sem einnig eru kúabú en
eitt bú sem er bara kúabú. Einnig eru nokkrir frístundabændur.
-
Margar jarðir hafa tekjur af laxveiði, í Laxárdal, Aðaldal og kannski eitthvað í Fnjóskadal,
veiðihús eru í hinum fyrrnefndu tveimur. Skjálfandafljót er með vaxandi hlutdeild. Nokkur
störf eru við leiðsögn við veiðarnar.
Þjónusta, iðnaður:
Eftirfarandi atriði komu fram á fundunum:
-
Sparisjóður Suður-Þingeyinga er á Laugum, Húsavík og Mývatnssveit (Reykjahlíð). Útibúi á
Fosshóli var nýverið lokað. Póstþjónusta og banki er samrekið á Laugum.
-
Á Stóru-Völlum í Bárðardal er kertagerð og tólgarvinnsla.
-
Í Mývatnssveit er bifreiðaverkstæði, Léttsteypan, banki, verslun, smíðaverkstæði, rafvirkjar,
verktakar í jarðvinnu og hárgreiðslukona kemur reglulega.
-
Verslunin Strax í Mývatnssveit gengur vel á sumrin vegna ferðamannastraumsins. Íbúum
finnst þó erfitt að versla á sumrin, biðtími er stundum langur vegna fjölda ferðamanna.
-
Grænar lausnir eru í gjaldþrotaferli frá hausti 2010. Í húsnæðinu eru tveir rafvirkjar með
aðstöðu og voru reyndar meðan fyrirtækið starfaði. Landsvirkjun á húsnæðið. Það fór aldrei
nein söluafurð frá fyrirtækinu. Það framleiddi pappabretti og fór svo að framleiða vélar til að
framleiða bretti sem enginn markaður var fyrir. Þarna unnu fjórir þegar mest var. Allir höfðu
áður starfað hjá Kísiliðjunni.
-
Í Mývatnssveit er nokkuð um heimavinnslu matvæla, reyking á silungi er í þremur reykhúsum
og hjá einstaklingum, reykt kjöt og hverarúgbrauð frá þremur stöðum. Handverk er selt í
Mývatnsmarkaði bæði í Reykjahlíð og við Dimmuborgir.
Velferðarmál og samfélag
Heilbrigðis- og félagsþjónusta og önnur opinber þjónusta:
Í þjónustukönnuninni (sjá viðauka x) er svarað fyrir tvo þéttbýliskjarna, Reykjahlíð og Laugar í
Reykjadal. Lögreglan á Húsavík þjónar þessu svæði. Heilsugæsla er á báðum stöðum en sinnt frá
Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langvarandi fólksfækkun
110
Húsavík og því ekki læknir á staðnum. Tannlæknaþjónusta er sótt bæði til Húsavíkur og Akureyrar.
Dvalarrými fyrir aldraða er á Húsavík og hvað íbúa Þingeyjarsveitar varðar einnig á Akureyri eða
Grenivík. Heilbrigðisþjónusta Þingeyinga sinnir stóru svæði og það að sameina hana í eitt styrkti hana
mjög. Áður var vandræðaástand að manna litlu stöðvarnar, en það breyttist við sameininguna. Sterk
grunnþjónusta er til staðar í heilbrigðisþjónustu. Læknir og hjúkrunarfræðingur koma af og til í Lauga
og í Mývatnssveit er hjúkrunarfræðingur á staðnum og lyfjaafgreiðsla í heilsugæslustöðinni. Læknir
kemur tvisvar í viku. Önnur atriði sem fram komu á fundunum:
-
Það skortir á heilbrigðisþjónustu til að mæta hinum mikla straumi ferðamanna um
Mývatnssveit á sumrin.
-
Aldraðir íbúar Mývatnssveitar sækja vistun til Húsavíkur. Heimahjúkrun og félagsleg
heimaþjónusta og félagsstarf aldraðra er til staðar. Ungbarnaeftirlit er í sveitinni, en
barnsfæðingar á Akureyri.
Jafnréttismál:
Þingeyjarsveit hefur nýlega samþykkt jafnréttisáætlun og konur eru að meirihluta í sveitarstjórn og
jafnt kynjahlutfall í nefndum, nema fjallskilanefnd. Meðvitað er reynt að halda jöfnu hlutfalli og að
sögn hefð fyrir því í Aðaldal.
Húsnæði:
Framboð á íbúðarhúsnæði, hvort heldur er til leigu eða kaupa er sagt lítið í svörum við
þjónustukönnuninni. Þessi þáttur var reyndar lítt eða ekki til umræðu á fundum okkar á þessu svæði.
Umhverfi
Orku- og sorpmál:
Þetta er jarðhitasvæði og því hitaveita víða, þó ekki alls staðar. Möguleg orkunýting og bygging álvers
Alcoa var til umræðu á fundunum, enda var þá ekki orðið ljóst um hvort af byggingu álvers yrði (og er
ekki ljóst enn). Mest var rætt um virkjun á Þeistareykjum og þau umsvif sem það kallar á, sem og
spurninguna um hvernig nýta eigi orkuna. Þeistareykir tilheyra Þingeyjarsveit og sveitarfélagið er í
samstarfi við Landsvirkjun um orkunýtinguna.
Samgöngur:
Rætt var um Vaðlaheiðargöng á fundunum og nokkuð misjöfn viðhorf komu fram. M.a. kom fram að
fyrstu áhrifin fyrir Húsavík verði neikvæð, því þjónustusókn til Akureyrar muni aukast. Sumir
viðmælenda á svæðinu vilja frekar ýmsar aðrar vegabætur. Hins vegar gegni öðru máli um
Vaðlaheiðargöng í tengslum við alvöru atvinnuuppbyggingu eins og álver. Í Þingeyjarsveit vonast
menn þó eftir að Vaðlaheiðargöng verði að veruleika. Það muni gjörbreyta samgöngumynstri á
svæðinu og t.d. auðvelda fólki að sækja vinnu á Akureyri. Þessi mál eru nú til umræðu í þinginu og
hafa ekki verið afgreidd þegar þetta er ritað. Þessi atriði komu m.a. fram á fundunum:
-
Tengivegir í Þingeyjarsveit eru lélegir, t.d. í Bárðardal, en vegir í gegn góðir, þó eru tvær
einbreiðar brýr á meginleiðum. Vegakerfið í byggðarlaginu er mjög langt. Lengsti skólaakstur
eru 50 km úr Svartárkoti, þaðan koma bæði grunn- og leikskólabörn. Vegurinn yfir hálendið
liggur upp úr Bárðardal. Vegagerðin sér um að moka hringveg og meginleiðir, en
sveitarfélagið kemur annars inn í kostnað.
-
Almenningssamgöngur milli Mývatnssveitar og Akureyrar eru lélegar að vetrinum, þær eru
ekki reglubundnar, en tengdar ferðum austur á land á óhentugum tíma dagsins, t.d. m.v. flug.
Engar almenningssamgöngur eru við Húsavík, en nú verður breyting á þegar flug hefst á ný
(vorið 2012). Flugvöllurinn í Mývatnssveit er notaður fyrir útsýnisflug að sumrinu.
-
Samgöngur úr Mývatnssveit eru greiðar. Sandurinn , eða Kísilvegurinn, er mokaður tvisvar í
viku að vetrinum. Það er malarvegur að hluta, en er miklu styttri leið til Húsavíkur fyrir
þorpsbúa, munar 20 mínútum við bestu aðstæður.