26
Stefnt er að því að stofna félag um framleiðsluna. Leitast verður við að fá erlenda fjárfesta að
verkefninu. Sláturleyfishöfum verður boðið að taka þátt í stofnun félagsins.
Grundvallaratriði svo að bíodíselframleiðsla geti orðið að veruleika er að sláturleyfishafar á
Norðurlandi vestra vinni saman að málinu. Bráðabirgðakostnaðargreining á verkefninu bendir til þess
að samanlagt magn fitu sem fellur til á Norðurlandi vestra nægi til að standa undir fjárfestingu
verkefnisins.
4.9 Efling Þekkingarseturs á Blönduósi
Verkefni 4.9 – Efling Þekkingarseturs á Blönduósi
Ný stöðugildi
2
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
25 m.kr.
Ábyrgð og framkvæmd
Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Listaháskóli Íslands
Tímaáætlun
2015
Ráðinn verði verkefnisstjóri sem hefði aðstöðu á skrifstofu Þekkingarsetursins í húsnæði
Kvennaskólans á Blönduósi og aðstoði söfn, menningarstofnanir og ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi
vestra við að byggja upp og þróa innviði starfseminnar og efla samstarf í markaðssetningu. Verkefnið
verði unnið í samstarfi við Þekkingarsetrið á Blönduósi, ferðaþjónustuaðila og söfn og setur á
svæðinu.
Umsvif starfseminnar sem fram fer innan veggja Kvennaskólans hefur aukist til muna undanfarin ár.
Vatnsdælurefill, minjastofur, námsver og Listamiðstöðin kalla á meiri umsjón og umsýslu með
starfseminni. Samræming og samstarf safna og setra er jafnframt nauðsynleg svo að starfsemin fái að
vaxa og þróast.
Markmiðið er að auka samstarf safna og setra á svæðinu með því að aðstoða stofnanirnar við að
byggja upp og þróa innviði starfseminnar og efla samstarf í markaðssetningu.
Einnig verði ráðinn sérfræðingur á sviði textíls sem hefur þekkingu og reynslu af textílfræðum.
Þekkingarsetrið var stofnað á Blönduósi snemma árs 2012. Þekkingarsetrið er með aðsetur sitt í
Kvennaskólanum á Blönduósi.
Tilgangur Þekkingarsetursins er að stuðla að almennri þekkingu með fræðslustarfi, eflingu
háskólamenntunar, vísindarannsókna og nýsköpunar á sviði laxfiska, strandmenningar og textíls.
Starfsemi Þekkingarsetursins er fjölþætt, sérfræðingar setursins starfa á sérsviðum setursins í
samstarfi við ýmsar stofnanir, þ. á m. Háskólann á Hólum og Veiðimálastofnun. Námsver er staðsett í
Kvennaskólanum. Einnig eru starfsmenn Þekkingarsetursins að þróa ýmis verkefni á sviði textíls.
Hjá Þekkingarsetrinu starfa 5 manns.
Þekkingarsetrið er í samstarfi við Textílsetur Íslands og Heimilisiðnarsafnið á Blönduósi varðandi
rannsóknir og uppbyggingu listamiðstöðvar í Kvennaskólanum. Fjöldi listamanna og fræðamenn á
sviði textíls hafa unnið og dvalið í Kvennaskólanum frá árinu 2012. Mikill áhugi, innanlands og utan,
er á íslenskri textíllist og textílfræðum og liggja mörg tækifæri í uppbyggingu á þessum sviðum innan
veggja Kvennaskólans. Þekkingarsetrið á Blönduósi hefur hafið vinnu við að kanna möguleika á
uppbyggingu textílnáms í samstarfi við Listaháskóla Íslands og erlenda listaháskóla. Markmiðið er að
hefja samstarf milli Þekkingarsetursins ásamt Listaháskóla Íslands og erlenda listaháskóla á sviði
textílnáms og textíllista með það að leiðarljósi að koma á staðbundnu textílnámi í húsnæði
Kvennaskólans á Blönduósi.
27
4.10 Efling sýslumannsembættisins á Blönduósi
Verkefni 4.10 – Efling sýslumannsembættisins á Blönduósi
Ný stöðugildi
4
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
30 m.kr.
Ábyrgð og framkvæmd
Innanríkisráðuneytið, önnur ráðuneyti
Tímaáætlun
2015
Í skýrslu norðvesturnefndar um fjölgun opinberra starfa á Norðvesturlandi sem kom út 2008 komu
fram hugmyndir að innheimtu fyrir ríkið og hinar ýmsu stofnanir þess, s.s. Tryggingastofnun ríkisins,
Vinnumálastofnun, Fæðingarorlofssjóð og einnig fyrir LÍN. Á árinu 2010 hóf embættið að innheimta
ofgreiddar bætur fyrir TR og VMST. Þá hefur embætti sýslumannsins á Blönduósi einnig tekið að sér
innheimtu fyrir Fjármálaeftirlitið og Vinnueftirlit ríkisins.
Í tengslum við fyrirhugaðar breytingar á skipan sýslumannsembætta og í samræmi við
þingsályktunartillögu um átak til atvinnuuppbyggingar í Austur-Húnavatnssýslu sem samþykkt var á
Alþingi þann 15. janúar 2014 lýsir embættið enn yfir vilja sínum til að taka að sér aukin verkefni sem
byggja á þeim tækjabúnaði, aðstöðu og þekkingu sem þegar er til staðar. Verkefnin eru eftirfarandi:
Vanskilainnheimta LÍN
Sambærilegar stofnanir IMST á Norðurlöndunum innheimta allar námslán í vanskilum. Þá hefur
bæjarstjórn Blönduósbæjar einnig kannað hjá ráðuneytum og stofnunum hvernig megi liðka til við að
fá umrætt verkefni til IMST.
Verkefni þetta þykir falla vel að þeim gildum sem sjóðurinn er reistur á, þ.e. að innheimta krafna hans
fari fram með eins litlum kostnaði fyrir skuldara og mögulegt er á hverjum tíma. Lágmörkun
kostnaðar við innheimtu þykir m.a. samrýmast þeim hugmyndum sem uppi hafa verið um breytingar
á námslánakerfinu, t.a.m. um niðurfellingu lána og brottnám ábyrgða við eftirlaunaaldur, sem
almennt hafa á sér nokkuð félagslegan blæ og miða að því að bæta hag lántakenda.
Innheimta sakarkostnaðar í málum ríkislögmanns
Með bréfi dagsettu 31. júlí 2014 til ríkislögmanns er óskað eftir viðræðum um þann möguleika að
flytja innheimtu sakarkostnaðar sem fellur til við málarekstur ríkislögmanns, og mögulega önnur
aðfararhæf innheimtuverkefni, til IMST. Umfang mála liggur ekki fyrir en þessi innheimta telst
sambærileg og sú sem nú þegar er hjá embættinu, svo sem innheimta sakarkostnaðar í opinberum
málum og innheimta endurkrafna vegna gjafsóknar og fellur því vel að þeirri starfsemi sem fyrir er.
Matvælastofnun
IMST hefur verið í viðræðum við matvælastofnun um innheimtu á dagsektum og stjórnvaldssektum
MAST. Fyrir liggja drög að samningi sem á eftir að staðfesta. Umfang liggur ekki fyrir.
Útgáfa leyfa skv. áfengislögum nr. 75/1998.
Þess var farið á leit með bréfi dagsettu 25. júní 2014 til innanríkisráðuneytisins (með vísan í mál
IRR13070004/10.1) að embættinu verði falin útgáfa leyfa til framleiðslu áfengis, innflutnings áfengis í
atvinnuskyni og sölu áfengis í heildsölu. Verkefni sem er vel þess fallið að styrkja starfsemi
sýsluskrifstofunnar á Sauðárkróki í nýju embætti.