33
yfirgripsmikil að stofnunin telur heppilegra að fækka starfsstöðvum úti á landi en á sama tíma að efla
ákveðnar starfsstöðvar verulega. Verkefni minjavörslunnar kalla á margskonar sérþekkingu og
samræður starfsfólksins og því er heppilegt að mynda öflugan hóp manna á hverjum stað. Stefnir
stofnunin að því að hafa í heild fjórar starfsstöðvar á landinu. Áhugi er á því hjá Minjastofnun Íslands
að sameina minjasvæði Norðurlands eystra og vestra, og jafnvel Vesturlands, í eitt minjasvæði sem
tekur þá yfir verulegt landflæmi, frá Langanesi í austri að Bitrufirði í vestri. Sauðárkrókur er því
landfræðilega vel staðsettur til að þjóna þessu stóra svæði.
Húsið Villa Nova á Sauðárkróki hýsir starfsemi Minjastofnunar Íslands. Um allnokkurt skeið hafa
eigendur þess viljað finna því hlutverk við hæfi og helst rætt um að afhenda það til eignar
menningarstofnunum sem rekið gætu þar starfsemi „sem hæfir húsinu“. Villa Nova rúmar vel
meginstarfsemi Minjastofnunar á Sauðárkróki þó gera þyrfti smávægilegar breytingar á húsnæðinu.
Hvað varðar tilflutning starfsemi stofnunarinnar á Sauðárkrók þá er um að ræða a.m.k. sex störf sem
yrðu flutt og staðsett á Sauðárkróki og er auðvelt að vinna þaðan á landsvísu. Ef höfuðstöðvar yrðu
fluttar þá gæti verið um fleiri störf að ræða.
Um er að ræða eftirfarandi störf:
1.
Einn fornleifafræðingur. Hann er fyrst og fremst hugsaður til aðstoðar minjaverði um
almenna minjavörslu á landsbyggðinni, sbr. starfslýsingu fyrir minjaverði. Hann myndi einnig
sjá um framkvæmd laga nr. 57/201 um skil menningarverðmæta til annarra landa og kafla XI,
flutning menningarminja úr landi í lögum nr. 80/2012.
2.
Einn arkitekt. Hann sinnir málefnum húsverndar á landsbyggðinni. Hann sinni þeim hluta
framkvæmda laganna sem snýr að húsvernd, þ.m.t. ráðgjöf, umsögnum vegna húsa og
mannvirkja á svæðinu, undirbúi friðlýsingar og aflýsingar þeirra ef við á. Einnig
hönnunarvinnu vegna bætt aðgengis og miðlunar á minjastöðum í umsjón stofnunarinnar.
3.
Einn iðnaðarmaður, helst smiður sem er vel að sér í viðgerð gamalla húsa og getur veitt
ráðgjöf um handverk og einnig haft eftirlit með störfum iðnaðarmanna sem sinna viðgerð
minja. Hlutverk hans er einnig að meta ástand bygginga. Þrátt fyrir að hann yrði staðsettur á
Sauðárkróki myndi hann sinna verkefnum um allt land fyrir Minjastofnun.
4.
Einn almannatengill sem sinnti útgáfumálum stofnunarinnar í heild, ritstjórn á allri prentaðri
útgáfu og miðlun á netinu. Hann sæi um heimasíðu og samfélagsmiðla og miðlaði öllum
upplýsingum um stofnunina, alla bæklingagerð, útgáfu á rannsóknarskýrslum, hann sæi um
merkingar á stofnuninni og bílum hennar og hann hefði tengsl við fjölmiðla f.h.
stofnunarinnar.
5.
Tvö störf í skráningu inn í gagnagrunninn Sarp. Bæði er um að ræða skráningu á húsum,
mannvirkjum og fornleifum á landinu. Skrásetjarar myndu einnig sinna skráningu í
teikningasafni arkitekta inn í gagnagrunninn og fleiri samsvarandi störf við upplýsingaöflun og
skráningu úr öðrum skjalasöfnum sem viðkemur húsa- og fornleifavernd.
5.4 Eigendahlutverk ríkisins í stofnfé sparisjóða fært til Byggðastofnunar
Verkefni 5.4 – Eigendahlutverk ríkisins í stofnfé sparisjóða fært til Byggðastofnunar
Ný stöðugildi
0
Flutt stöðugildi
1
Áætlaður kostnaður
Kostnaður upp á u.þ.b. 9,5 m.kr. flyst frá Bankasýslunni til
Byggðastofnunar
Ábyrgð og framkvæmd
Fjármálaráðuneytið, Byggðastofnun
Tímaáætlun
Áramót 2014/2015
34
Lagt er til að kannaðir verði möguleikar á flutningi stofnfjár ríkisins í sparisjóðum á starfssvæði
Byggðastofnunar til stofnunarinnar þannig að Byggðastofnun fari eftirleiðis með eigendahlutverk
ríkisins.
Bankasýsla ríkisins er ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn sem heyrir undir fjármálaráðherra. Hún var
stofnuð með lögum nr. 88/2009. Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum,
í samræmi við lög, góða stjórnsýslu- og viðskiptahætti og eigendastefnu ríkisins á hverjum tíma, og
leggur þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimilda í fjárlögum.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhluti ríkisins í þremur viðskiptabönkum, Arion banka, Íslandsbanka
og Landsbankanum, og fjórum sparisjóðum, Sparisjóði Norðurlands, Sparisjóði Bolungarvíkur,
Sparisjóði Norðfjarðar og Sparisjóði Vestmannaeyja.
Samkvæmt 9. gr. laganna skal stofnunin hafa lokið störfum eigi síðar en fimm árum frá því að hún er
sett á fót og verður hún þá lögð niður. Við starfslok Bankasýslu ríkisins þarf að taka afstöðu til þess
hvernig fari verði með eignarhluti ríkisins í framangreindum sparisjóðum.
5.5 Siglingasvið Vegagerðarinnar flutt til Skagafjarðar
Verkefni 5.5 – Siglingasvið Vegagerðarinnar flutt til Skagafjarðar
Ný stöðugildi
0
Flutt stöðugildi
18
Áætlaður kostnaður
Mest tilflutningur kostnaðar. Flutningskostnaðurinn sjálfur ræðst m.a.
af þeim fordæmum sem ríkið vill setja.
Ábyrgð og framkvæmd
Innanríkisráðuneytið, Vegagerðin
Tímaáætlun
2015
Lagt er til að þau opinberu störf sem heyra undir Siglingasvið Vegagerðarinnar verði flutt til
Sauðárkróks en því sviði tilheyra verkefni sem áður tilheyrðu hafna- og vitasviði Siglingastofnunar.
Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni er um að ræða 18 störf tengd höfnum og vitum landsins.
Fyrir rekur Vegagerðin þjónustustöð og útibú frá miðstöð á Sauðárkróki með 15 starfsmönnum.
Núverandi húsnæði starfsstöðvarinnar getur tekið við aukinni starfsemi.
5.6. Umferðareftirlit Samgöngustofu fært til lögreglunnar á Norðurlandi vestra
Verkefni 5.6 – Umferðareftirlit Samgöngustofu fært til lögreglunnar á Norðurlandi vestra
Ný stöðugildi
0
Flutt stöðugildi
4
Kostnaður
Flyst til
Ábyrgð og framkvæmd
Innanríkisráðuneytið
Tímaáætlun
2015
Lagt er til að innanríkisráðherra hefji undirbúning að því að sameina umferðareftirlit Samgöngustofu
lögreglunni. Markmið umferðareftirlits Samgöngustofu er fyrst og fremst að sinna eftirliti með þunga
ökutækja og hvíldartíma ökumanna (ökuritum) og þeir sem framkvæma eftirlitið hafa engar
valdheimildir eða þvingunarúrræði. Öll mál sem koma frá þeim eru kærð til lögreglu með tilheyrandi
tvíverknaði og framhaldsmeðferð. Með því að færa það eftirlit undir lögregluna má stórauka skilvirkni
við afgreiðslu mála og nýtingu fjármuna. Auk þess mun sýnileiki löggæslu aukast á vegum landsins.
Hægt væri að framfylgja öðrum brotum á umferðarlögum, s.s. of hröðum akstri, ölvun við akstur,
35
akstur undir áhrifum vímuefna o.s.frv. Í því felst sömuleiðis bætt nýting fjármuna. Lögreglumenn í
þessum ökutækjum gætu því sinnt öllu umferðareftirliti sem nú er eingöngu á hendi lögreglunnar,
svo sem eftirlit með hraða, ölvun, akstri undir áhrifum fíkniefna o.s.frv. Lögreglumenn í þessu eftirliti
væru einnig góður stuðningur við embættin ef eitthvað kæmi upp á og ekki síst í umferðarslysum.
Nú þegar er verið að greiða lögreglu fyrir sérstakt umferðareftirlit vegna skilgreindra vegkafla í hverju
umdæmi. Þetta eftirlit sem hér um ræðir gæti sinnt þessum vegköflum með hraðamyndavélum,
ratsjám eða laserhraðamælitækjum. Miklir möguleikar eru því á að afgreiða mál strax á vettvangi.
Með því að færa fjármagn sem þegar er sett í þetta verkefni hjá Samgöngustofu og það fjármagn sem
notað er í sérstaka eftirlitið má bæta umferðareftirlit lögreglu á vegum landsins og auka sýnileika
lögreglu. Þingmannanefndin mælir með því við innanríkisráðherra að hefja undirbúning að því að
sameina umferðareftirlit Samgöngustofu lögreglunni.
5.7 Ný starfsstöð þýðingarmiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Verkefni 5.7 – Ný starfsstöð þýðingarmiðstöðvar utanríkisráðuneytisins
Ný stöðugildi
0
Flutt stöðugildi
3
Áætlaður kostnaður
25–30 m.kr. sem flytjast frá öðrum að mestu leyti
Ábyrgð og framkvæmd
Utanríkisráðuneyti
Tímaáætlun
2015
Lagt er til að til Hvammstanga verði flutt að minnsta kosti 3 störf við þýðingarmiðstöð frá Reykjavík.
Við þýðingar á vegum utanríkisráðuneytis starfa nú 37 manns, þar af 6 á Akureyri, 2 á Ísafirði og 3 á
Seyðisfirði. Þýðingar eru starfsemi sem auðveldlega má sinna hvar sem er og flytja gögn á milli
rafrænt. Nægilegt skrifstofuhúsnæði er til staðar á Hvammstanga og hægt að fá leigða fullbúna
skrifstofuaðstöðu undir starfsemina.
5.8 Aukin verkefni Greiðslustofu Vinnumálastofnunar
Verkefni 5.8 – Aukin verkefni Greiðslustofu Vinnumálastofnunar
Ný stöðugildi
0
Flutt stöðugildi
6
Áætlaður kostnaður
Flyst til
Ábyrgð og framkvæmd
Velferðarráðuneytið, Tryggingastofnun og Vinnumálastofnun
Tímaáætlun
2015
Lagt er til að Greiðslustofu Vinnumálastofnunar verði falið að taka að sér greiðslur fyrir
Tryggingastofnun og Sjúkratryggingar Íslands.
Markmiðið er að auka verkefni á Norðurlandi vestra og nýta þá þekkingu sem er til staðar og þann
mannauð sem hefur skapast við störf hjá Greiðslustofu. Mjög líklegt er að talsverður
heildarsparnaður verði þegar verkefnið er komið yfir til Greiðslustofu, en kostnaður við flutninginn er
ekki ljós.
36
6 Samantekt tillagna
Verkefni
Ný
stöðu-
gildi
Flutt
stöðu-
gildi
Áætlaður
kostnaður
Ábyrgð og framkvæmd
Tímaáætlun
3.1 Efling Háskólans á
Hólum
4
0
24 m.kr.
Mennta- og
menningarmálaráðu-
neytið, Háskólinn á Hólum
2015
3.2 Efling Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra
5
0
30 m.kr.
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið,
FNV
2015
3.3 Framlag í Atvinnu-
og nýsköpunarsjóð fyrir
Norðurland vestra
0
0
10 m.kr. á ári
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
2015–2017
3.4 Rannsókn á
stórskipahöfn
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið,
umhverfisráðuneytið,
SSNV
2015–2017
4.1 Uppbygging
nýsköpunar- og
frumkvöðlaseturs á
Sauðárkróki
2
0
14 m.kr.
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
(iðnaðar- og
viðskiptaráðherra),
Nýsköpunarmiðstöð
Íslands, Matís og Svf.
Skagafjörður
Undirbúningur
hæfist á árinu
2015 og ráðið
yrði í störfin
síðar það ár
4.2 Tilflutningur
heimahafnar eins
varðskipa
Landhelgisgæslunnar til
Sauðárkróks
5
0
35 m.kr í fyrsta
áfanga
Innanríkisráðuneytið,
Landhelgisgæslan
Skipið yrði
staðsett á
Sauðárkróki
haustið 2014
og ráðið í
nýjar stöður
2014 og 2015
4.3 Varðveisla
afhendingarskyldra
gagna á Sauðárkróki
2
0
40 m. kr.
Mennta- og menningar-
málaráðuneytið, fjármála-
og efnahagsráðuneytið,
Þjóðskjalasafn Íslands,
Ríkisskattstjóri, AZAZO hf.,
Svf. Skagafjörður
2016
4.4 Selasetur Íslands
2
0
30 m.kr. og 10
m.kr.
stofnkostnaður
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti,
Veiðimálastofnun, Hafró
og Selasetur Íslands
2015
4.5 Efling
Fæðingarorlofssjóðs
2
2
30 m.kr.
Velferðarráðuneytið,
Vinnumálastofnun
2015
4.6 Hvíldarinnlagnir á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands,
Hvammstanga
4
0
35 m.kr.
Heilbrigðisráðuneytið
2015
4.7 Skráningarverkefni
kirkjubóka
3
0
15 m.kr. á ári
Innanríkisráðuneytið,
mennta- og
menningarmálaráðuneytið,
Þjóðskjalasafn
2015–2017
4.8 Bíodíselframleiðsla á
Blönduósi
1
0
10 m.kr.
Blönduósbær,
Nýsköpunarmiðstöð,
sláturhús
2015
37
4.9 Efling
þekkingarseturs á
Blönduósi
2
0
25 m.kr.
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið,
Listaháskóli Íslands
2015
4.10 Efling sýslumanns-
embættisins á Blönduósi
4
0
30 m.kr.
Innanríkisráðuneytið,
önnur ráðuneyti
2015
4.11 Frumkvöðlasetur í
tengslum við BioPol ehf
1
0
30 m.kr.
Nýsköpunar- og
atvinnuvegaráðuneytið,
BioPol ehf. / Háskólinn á
Akureyri, mennta- og
meninngarmálaráðuneytið
2015
4.12 Auknar
hugvísindarannsóknir á
menningar-
miðlunarstarfi
1
0
8 m.kr. á ári
Mennta- og menningar-
málaráðuneytið, Stofnun
rannsóknasetra Háskóla
Íslands á Norðurlandi
vestra
2015–2019
4.13 Frekara viðhald
Kvennaskólans á
Blönduósi
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið,
sveitarfélög í A-Húnavatns-
sýslu
2015–2017
5.1 Höfuðstöðvar nýs
húsnæðislánafélags og
nýrrar húsnæðis-
stofnunar á Sauðár-króki
Unnið í
samráði
við
viðkom-
andi
fagráð-
herra
Unnið í
samráði
við
viðkom-
andi
fagráð-
herra
Flyst að mestu
til
Velferðarráðuneytið
(félags- og
húsnæðismálaráðherra)
Starfsemi
beggja stofn-
ana hæfist á
árinu 2015
5.2 Höfuðstöðvar RARIK
fluttar til Skagafjarðar og
starfsstöðvar á
Blönduósi og
Hvammstanga efldar
0
50
Flyst að mestu
til
Fjármála- og efnahags-
ráðuneytið, RARIK ohf.
2016
5.3 Efling deildar
Minjastofnunar á
Sauðárkróki
0
6
Flyst að mestu
til
Forsætisráðuneytið,
Minjastofnun
2015
5.4 Eigendahlutverk
ríkisins í stofnfé
sparisjóða fært til
Byggðastofnunar
0
1
Flyst til
Fjármálaráðuneytið,
Byggðastofnun
Áramót
2014/2015
5.5 Siglingasvið Vega-
gerðarinnar
flutt
til
Skagafjarðar
0
18
Flyst að mestu
til
Innanríkisráðuneytið,
Vegagerðin
2015
5.6
Umferðareftirlit
Samgöngustofu fært til
lögreglunnar
á
Norðurlandi vestra
0
4
Flyst til
Innanríkisráðuneytið
2015
5.7 Ný starfsstöð
þýðingarmiðstöðvar
utanríkisráðuneytisins
0
3
25–30 m.kr.
sem flytjast frá
öðrum
Utanríkisráðuneytið
2015
5.8
Aukin
verkefni
Greiðslustofu
Vinnumálastofnunar
0
6
Flyst til
Velferðarráðuneytið,
Tryggingastofnun,
Vinnumálastofnun
2015
Dostları ilə paylaş: |