28
Að lokum má nefna að bæði innanríkisráðuneyti og Ríkislögreglustjóri hafa lýst því yfir að úthýsa megi
fleiri verkefnum til sýslumannsembættanna á landsvísu, s.s. við útgáfu leyfa.
4.11 Frumkvöðlasetur í tengslum við BioPol ehf.
Verkefni 4.11 – Frumkvöðlasetur í tengslum við BioPol ehf.
Ný stöðugildi
1
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
10 m.kr. og 20 m.kr. stofnkostnaður
Ábyrgð og framkvæmd
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, BioPol ehf. /Háskólinn á
Akureyri og mennta- og menningarmálaráðuneyti
Tímaáætlun
2015
Lagt er til að útbúin verði frumkvöðlamiðstöð til fjölbreyttrar matvælavinnslu í tengslum við
rannsóknastofu BioPol ehf. Jafnframt yrði Háskólanum á Akureyri veitt fjármögnun til þess að ráða
matvælafræðing sem staðsettur yrði hjá BioPol ehf og myndi styðja við frumkvöðla á Norðurlandi
vestra.
Miðstöðin hefði öll tilskilin leyfi til matvælavinnslu og yrði búin fjölbreyttu úrvali matvinnslutækja og
áhalda. Aðstaðan yrði því sérsniðin fyrir frumkvöðla í matvælavinnslu á svæðinu til að taka fyrstu
skref framleiðslu og þróunar á vörum sínum.
Hlutverk matvælafræðingsins yrði fyrst og fremst að veita nauðsynlega sérfræðiráðgjöf og aðstoða
frumkvöðla við að þróa vörur sínar í markaðshæft form. Jafnframt myndi viðkomandi aðili aðstoða
við uppsetningu gæðahandbókar og veita nauðsynlega ráðgjöf um kröfur hins opinbera í
matvælaframleiðslu.
Markmiðið er að efla atvinnulíf og samfélag í A-Húnavatnssýslu með hliðsjón af því starfi sem unnið
hefur verið hjá BioPol ehf. og nýta betur mikla matvælaframleiðslu á Norðurlandi vestra.
Þá skapast samlegðaráhrif við nýtingu á rannsóknastofu BioPol ehf. í tengslum við
frumkvöðlamiðstöðina og hægt er að nýta tækifæri sem liggja í því að hjá BioPol ehf. starfa nú
sérfræðingar með fjölbreytta þekkingu og gætu styrkt starfsemi miðstöðvarinnar til muna.
Kostnaður er metinn á 30 m.kr.
Breytingar á húsnæði
7 m.kr
Tækjabúnaður
13 m.kr
Háskólinn á Akureyri
1 stöðugildi
10 m.kr
Samtals
30 m.kr
29
4.12 Auknar hugvísindarannsóknir á menningarmiðlunarstarfi
Verkefni 4.12 – Auknar hugvísindarannsóknir á menningarmiðlunarstarfi
Ný stöðugildi
1
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
8 m.kr. á ári
Ábyrgð og framkvæmd
Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Stofnun rannsóknasetra
Háskóla Íslands og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi
vestra
Tímaáætlun
2015–2019
Lagt er til að ráðinn verði við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra
rannsóknasérfræðingur/akademískur sérfræðingur á sviði hugvísinda til rannsókna á þekkingar- og
rekstrargrundvelli safna, setra, sýninga og annarra menningarverkefna á landsbyggðinni og samhengi
þess við ákvarðanatöku, opinbera stefnumörkun og framkvæmd.
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands er vettvangur fyrir samstarf háskólans um ýmis verkefni við
sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga. Meginhlutverk stofnunarinnar er að
efla rannsókna- og fræðastarf Háskóla Íslands um land allt með því að styrkja tengsl Háskóla Íslands
við atvinnu- og þjóðlíf í landinu, styrkja rannsóknir á landsbyggðinni með eigin rannsóknum og
samstarfi við aðra, nýta staðbundnar aðstæður í umhverfi og atvinnugreinum til rannsókna og auka
þekkingu á þeim, stuðla að nánum tengslum fræðasviða og deilda háskólans við rannsóknasetur á
landsbyggðinni, veita nemendum aðstöðu til vettvangsnáms og taka þátt í starfsemi þekkingarsetra.
Í dag eru starfandi 7 rannsóknasetur Háskóla Íslands vítt og breitt um landið á 9 starfsstöðvum. Á
síðasta ári starfaði 31 hjá stofnuninni í 18 stöðugildum og var veltan um 160 m.kr. Ríflegur þriðjungur
tekna stofnunarinnar var sjálfsaflafé, úr innlendum og erlendum samkeppnissjóðum.
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra hóf starfsemi á Skagaströnd í nóvember 2009
en opnaði formlega í apríl 2010. Rannsóknarsvið setursins á Skagaströnd er sagnfræði og fyrir því fer
dr. Lára Magnúsardóttir, rannsóknasérfræðingur. Við setrið hafa starfað í tímabundnum verkefnum
verkefnisstjórar og er nú doktorsnemi í 20% starfshlutfalli út árið í rannsóknaverkefni og við
undirbúning ráðstefnu, í samvinnu við forstöðumann setursins.
Markmið:
Styrkja stöðu hugvísindarannsókna í landinu með ráðningu rannsóknasérfræðings á sviði hugvísinda.
Skapa nýjan vísindalegan þekkingargrundvöll fyrir svið sem skortir stuðning.
Skapa nýjan vísindalegan þekkingargrundvöll til stefnumörkunar fyrir yfirvöld.
Styrkja rekstrargrundvöll menningartengdrar starfsemi.
Efla undirstöður menningar- og sögumiðlunar í landinu.
Draga á svæðið fjármagn úr innlendum og erlendum samkeppnissjóðum en það hefur sýnt sig að
rannsóknasetur Háskóla Íslands um landið eru gluggi að stærri sjóðum en einstaka setur og stofnanir
á landsbyggðinni hafa átt aðgang að.
Renna styrkari stoðum undir ferðaþjónustu á svæðinu.
Efla tengsl við samstarfsaðila á svæðinu og utan þess.
Efla atvinnulíf og samfélag í A-Húnavatnssýslu.