20
4 Ný verkefni
Mikilvægt er að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu
opinberra starfa …
(Úr stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands)
Efling opinberrar þjónustu og ráðgjafar
Nefndin leggur áherslu á að framgangur þeirra tillagna sem hér eru lagðar fram og árangur til eflingar
atvinnustarfsemi í héraði byggir hvoru tveggja á því að tillögurnar nái raunverulega fram að ganga og
að sú starfsemi og þau störf sem skapist verði tryggð til langs tíma en ekki skorin jafnóðum niður af
forstöðumönnum viðkomandi stofnana eða af fjárlaganefnd og Alþingi, sem og hinu að heimamenn
með frumkvæði og útsjónarsemi nái að nýta sér þau tækifæri og þá ráðgjöf sem í tillögunum felst.
Ekki eru beinar tillögur um nýsköpun starfa í einkageiranum en fyrir tilstilli eflingu innviða og aukinna
fjárfestinga á svæðinu, sem tillögur eru um í skýrslunni, leiðir að ný störf munu verða sköpuð þar líkt
og hér er lagt til að verði innan raða opinberrar þjónustu.
4.1 Uppbygging nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs á Sauðárkróki
Verkefni 4.1 – Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur
Ný stöðugildi
2
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
14 m.kr.
Ábyrgð og framkvæmd
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (iðnaðar- og
viðskiptaráðherra), Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Matís og
Sveitarfélagið Skagafjörður
Tímaáætlun
Undirbúningur hæfist á árinu 2015 og ráðið yrði í störfin síðar það ár.
Í Stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks frá því í maí 2013 er sérstakur
kafli tileinkaður nýsköpun. Þar stendur:
„Ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á nýsköpun í öllum atvinnugreinum. Nauðsynlegt er að
auka framleiðni hér á landi og það er forsenda langtímahagvaxtar að skapa umhverfi sem
hvetur til nýsköpunar í starfandi fyrirtækjum, opinberum rekstri og nýjum fyrirtækjum.“
Lagt er til að sett verði á laggirnar nýsköpunar- og frumkvöðlasetur á Sauðárkróki. Setrið yrði hið
fyrsta sinnar tegundar á landsbyggðinni og yrði rekið í húsnæði gamla barnaskólans við Freyjugötu.
Sveitarfélagið Skagafjörður er reiðubúið að færa ríkinu húsið að gjöf sem framlag til stofnunar
setursins en fasteignamat húss og lóðar nemur um 60 m.kr. Fasteignir ríkissjóðs leggja til sambærilegt
mótframlag til að færa húsnæðið til þess horfs sem hentar starfseminni. Einnig eru uppi hugmyndir
um að sækja ákveðið stofnfé til atvinnulífs í Skagafirði. Umsjón með rekstri setursins yrði í höndum
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem í dag kemur að rekstri átta sambærilegra setra á
höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Setrið yrði hugsað sem miðstöð nýsköpunar og þróunar á
Norðurlandi vestra ásamt því að hýsa fjölbreytta starfsemi á sviðum lista og menningar. Þar yrði í
boði fagleg ráðgjöf og stuðningur fyrir frumkvöðla, skrifstofuaðstaða á sanngjörnum kjörum og
fundaaðstaða. Síðast en ekki síst myndi verða til skapandi umhverfi og öflugt tengslanet frumkvöðla
og fyrirtækja. Setur sem þetta styrkir nýsköpun og skapandi greinar á svæðinu, ýtir undir
21
tengslamyndun frumkvöðla, fyrirtækja og stofnana, bætir ímynd svæðisins, bætir sjálfsmynd íbúa
svæðisins og leggur grunn að atvinnusköpun til framtíðar. Jafnframt væri vel við hæfi að FabLab, sem
í dag er í húsnæði Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, færi í ofangreint húsnæði. FabLab á
Sauðárkróki er í dag líklega mest nýtta stafræna smiðjan á landinu.
Starfsemi af þessu tagi eykur fýsileika á búsetu á svæðinu meðal yngra fólks, sem samkvæmt nýlegri
könnun vill helst starfa í greinum tengdum listum og skapandi greinum. Minnt er á að fólksfækkun
sem orðið hefur í Skagafirði á liðnum árum er mest í hópi yngra fólks meðan fjöldinn í efri
aldursþrepum heldur sér betur. Til að sporna við þessu er nauðsynlegt að efla nýsköpun og
fjölbreytni í samfélaginu og grípa til aðgerða sem miða að þörfum og áhuga þeirra sem yngri eru.
Að auki er lagt til að Matís opni matarsmiðju í húsinu þar sem frumkvöðlum og litlum fyrirtækjum er
gefinn kostur á að stunda vöruþróun og hefja smáframleiðslu á matvælum gegn vægu leigugjaldi.
Engin slík matarsmiðja er á Norður- eða Vesturlandi en matarsmiðjur eða tilraunaeldhús eru á Höfn í
Hornafirði, á Flúðum og í Reykjavík. Í Skagafirði er í dag rekið metnaðarfullt verkefni undir heitinu
Matarkistan Skagafjörður og ekki þarf að fjölyrða um hið mikla matvælaframleiðsluhérað sem
Skagafjörður er. Með slíkri smiðju er hægt að auka vöruþróun í landbúnaði, auka verðmæti
framleiddra afurða á svæðinu, stuðla að atvinnuuppbyggingu, stuðla að frekari fullvinnslu afurða og
styðja við þá framleiðendur sem vilja selja Beint frá býli.
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið yrði opið öllum áhugasömum Norðlendingum og einstaklingum
hvaðanæva að af landinu.
4.2 Tilflutningur heimahafnar eins varðskipa Landhelgisgæslunnar til
Sauðárkróks
Verkefni 4.2 – Tilflutningur heimahafnar varðskips Landhelgisgæslunnar til Sauðárkróks
Ný stöðugildi
5
Flutt stöðugildi
0
Áætlaður kostnaður
35 m.kr.
Ábyrgð og framkvæmd
Innanríkisráðuneytið, Landhelgisgæslan
Tímaáætlun
Skipið yrði staðsett á Sauðárkróki haustið 2014 og ráðið í nýjar stöður
á árunum 2014 og 2015.
Samhliða minnkandi hafís á norðurskautinu, opnun siglingaleiða fyrir norðan Ísland og aukinni
umferð ferðamanna á Íslandi hefur umferð skipa og báta fyrir Norðurlandi aukist til muna undanfarin
ár.
Skipaumferð við austurströnd Grænlands hefur aukist mikið yfir sumarmánuðina en þar er um að
ræða skemmtiferðaskip með miklum fjölda farþega, rannsóknaskip, skip tengd flutningum vegna
aukins iðnaðar á svæðinu auk þess sem umferð skemmtibáta og seglskipa hefur aukist. Þá hefur orðið
gríðarleg aukning á farþegaflutningum við Norðurland samhliða auknum ferðamannastraumi og
ásókn í hvalaskoðunarferðir, en segja má að sprenging hafi orðið í ferðaþjónustu á sjó við Ísland
síðastliðin ár. Þar er aðallega um að ræða Eyjafjörð, Skagafjörð og Skjálfandasvæðið.
Með olíurannsóknum fyrir Norðausturlandi mun skipaumferð aukast og þá má gera ráð fyrir
áframhaldandi aukningu á umferð skipa á svæðinu en áætlanir benda til að flutningar um
efnahagslögsögu Íslands munu aukast á næstu árum með tilheyrandi hættu á slysum.